Angus nautið Emmi 20401 óseldur

Þann 10 ágúst voru tilboðin í  Angus nautin opnuð.  Tilboð barst frá 2 bændum  og tóku þeir nautin Erp 20402 og Eðal 20403. Nautið Emmi 20401 er því óselt. Tilboðsfrestur í hann hefur verið framlengdur til 24. ágúst. Tilboðin verða opnuð mánudaginn 30. ágúst kl 11:00. Möguleiki er á að senda inn tilboð á tölvupósti  Continue Reading »

Nýir hrútar á sauðfjársæðingastöð

Nýlega var farið í Austur-Skaftafellssýslu og náð í 2 nýja hrúta fyrir sauðfjársæðingastöðvarnar.  Báðir hrútarnir eru fæddir 2017, Svartur frá Hvammi í Lóni er undan Kletti 13-962 og er með 120 í kynbótaeinkunn fyrir gerð, 112 fyrir fitu, 108 fyrir frjósemi og 110 fyrir mjólkurlagni. Hinn hrúturinn Herkúles frá Hestgerði grár að lit og gefur  Continue Reading »

Angus nautin hjá Nautís boðin til sölu

Angus nautin 3 hjá Nautís frá 2020 verða nú boðin til sölu. Sæðistaka er hafin úr þeim  og fljótlega verður sæði úr þeim sem gefa nothæft sæði  til dreifingar. Myndin er af Eðali 20403 en hin nautin eru Emmi 20401 og Erpur 20402. Nánari lýsingar á nautunum ásamt útboðsreglum og eyðublaði til að bjóða í  Continue Reading »

Sæðistaka úr Angus nautunum frá 2020 hafin

Sæðistaka úr Angus nautunum 3 sem eru búin að vera 9 mánuði í einangrun hófst í byrjun júlí. Nautin sem um ræðir eru Emmi 20401, Erpur, 20402 og Eðall 20403. Þau eru ársgömul og vega um eða yfir 600 kg.  Öll eru undan Emil av Lillebakken 74028 sem er eitt af betri Angus nautum í  Continue Reading »

Sumarlokun á skrifstofu BSSl

Vegna sumarleyfa! Frá mánudeginum 5. júlí til og með föstudagsins 23. júlí, er skrifstofan lokuð . Við bendum á eftirfarandi símanúmer og heimasíður ef á þarf að halda: Búnaðarsamband Suðurlands bssl.is sumarlokun þessar vikur. Ráðgjafarmiðstöð Landbúnaðarins rml.is  Sími 516-5000 rml@rml.is Hafrannsóknastofnun, hafogvatn.is   Magnús sími 575-2620/840-6320. Benóný sími 575-2622/868-7657 Skógræktin, skogur.is, 470-2000 Moli tölvur og tækni,  Continue Reading »

Ræktum Ísland – Þingborg 14. júní

Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra heldur fundi um land allt fyrri hluta júnímánaðar til að ræða Ræktum Ísland! umræðuskjal um landbúnaðarstefnu fyrir Ísland við bændur og hagaðila og verður Með í för verða þau Björn Bjarnason og Hlédís H. Sveinsdóttir, sem mynda verkefnastjórn um landbúnaðarstefnu. Fleiri starfsmenn ráðuneytisins munu einnig taka þátt í fundunum.

Námskeið fyrir kúabændur á Suðurlandi.Beiðslisgreining og frjósemi mjólkurkúa

Námskeiðið er haldið af Búnaðarsambandi Suðurlands/Kynbótastöð ehf og verður á Stóra Ármóti fimmtudaginn 27.maí Kennari er Þorsteinn Ólafsson dýralæknir Á námskeiðinu er fjallað um æxlunarlíffræði mjólkurkúa, skýrt út hvernig sæðing gengur fyrir sig, hvaða hormón stýra æxlunarferlinu, hvernig eggjastokkarnir breytast í gegnum gangferilinn. Gerð er grein fyrir hvernig frjósemi mjólkurkúa er háttað við íslenskar aðstæður,  Continue Reading »

Klaufsnyrting og góð klaufhirða

Birkir Þrastarson sér um klaufsnyrtingu fyrir sunnlenska kúabændur á vegum Kynbótastöðvar ehf. sími hans er 897-4482. Góð klaufhirða bætir almenna líðan kúnna og eykur jafnframt nyt þeirra. Víða erlendis hafa rannsóknir sýnt fram á aukningu í nyt um 5 – 8% og enginn vafi talinn á fjárhagslegum ávinningi af reglulegri klaufsnyrtingu. Í Þýskalandi hefur t.d. verið  Continue Reading »

Verðlaun fyrir afurðahæsta búið og afurðamestu kúna á Suðurlandi 2020

Á aðalfundi Félags Kúabænda á Suðurlandi þann 25. febrúar veitti Búnaðarsambandið verðlaun fyrir afurðahæsta kúabúið á Suðurlandi 2020 sem var hjá Fanneyju og Reyni Hurðarbaki  en meðalafurðir voru 8.445 kg/árskú Einnig fyrir afurðahæstu kúna á Suðurlandi 2020 sem var Ösp 1280, Birtingaholti 4 hjá Fjólu og Sigurði en hún mjólkaði 14.062 kg Þá voru veitt  Continue Reading »

Páskafrí frjótækna

Frjótæknar eru í fríi á stórhátíðardögum en þeir eru m.a. föstudagurinn langi og páskadagur sem nú eru 2. og 4. apríl. Aðrir stórhátíðardagar eru nýársdagur, hvítasunnudagur,  17. júní og jóladagur.

Fjárfestingastuðningur í nautgriparækt

Opnað hefur verið fyrir umsóknir um fjárfestingastuðning í nautgriparækt í samræmi við reglugerð um stuðning við sauðfjárrækt nr. 1252/2019, VIII. kafla. Umsóknum um fjárfestingastuðning vegna framkvæmda á árunum 2020-2021 skal skilað inn rafrænt á afurd.is eigi síðar en 31. mars. Skilyrði fyrir veitingu fjárfestingastuðnings er að finna í 26. gr. reglugerðarinnar og eru vegna: Nýframkvæmda Endurbóta á eldri  Continue Reading »

Mjaltaþjónn á Stóra Ármót

Ákveðið var af stjórn Stóra Ármóts ehf að athuga með kaup á mjaltaþjóni fyrir kúabúið á Stóra Ármóti Gengið var til samninga við Landstólpa ehf um kaup á Fullwood Merlin2 mjaltaþjóni. Á myndinni má sjá Eirík Arnarsson sölustjóra Landstólpa og Svein Sigurmundsson framkvæmdastjóra Stóra Ármóts ehf með sitthvort samningseintakið um kaupin en mjaltaþjóninn er væntanlegur  Continue Reading »

Angus kvígurnar hjá Nautís farnar að bera

Angus kvígurnar frá árinu 2018 eru farnar að bera á einangrunarstöðinni á Stóra Ármóti. Fæddir eru 3 kálfar tvær kvígur og eitt naut og von á fleirum næstu daga. Kvígurnar voru sæddar með innfluttu sæði úr úrvalsnautinu Jens av Grani 74061. Burður gekk vel og hratt fyrir sig. Kálfarnir eru sprækir en fremur smáir enda  Continue Reading »

Fréttir frá Nautís

Aðalfundur Nautís var haldinn 12. febrúar. Þar voru lagðir fram til afgreiðslu reikningar síðustu tveggja ára ásamt skýrslu stjórnar. Baldur Helgi Benjamínsson flutti erindi sem fjallaði um af hverju Aberdeen Angus kynið varð fyrir valinu sem m.a. er vegna þess að kynið kemur vel út í samanburði við önnur holdanautakyn í umræðunni um loftslagsmál. Angus  Continue Reading »

Tollamál og tollvernd landbúnaðarins

Búnaðarsamband Suðurlands hefur fengið Ernu Bjarnadóttur hagfræðing og verkefnastjóra Mjólkursamsölunnar til að flytja erindi um tollamál og tollasamninga sem varða landbúnað og svara spurningum í hádeginu föstudaginn 19. febrúar. Fundurinn hefst kl 12:00. Hlekkur til að tengjast fundinum  

Aðalfundur Félags Kúabænda á Suðurlandi

Aðalfundur Félags kúabænda á Suðurlandi árið 2021 verður haldinn í fjarfundi fimmtudaginn 25. febrúar og hefst kl. 10:00 Vegna skipulagningar verða þeir sem ætla að taka þátt í fundinum að senda tölvupóst á netfangið hallieinars@gmail.com og fá þá senda slóð til að tengjast inn á fundinn. Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf : Skýrsla stjórnar. Reikningar félagsins  Continue Reading »

Svartiskúti Kiðafelli

Í morgun fæddist fyrsti Angus kálfurinn hjá bónda úr fósturvísaskoluninni frá janúar á síðasta ári. Faðir er Draumur  18402 og móðir Sveina 0004 undan Stóra Tígri. Fósturvísirinn var settur upp 7. maí og eru 269 dagar síðan. Kálfurinn er fæddur á Kiðafelli í Kjós og er nautkálfur sem nefndur hefur verið Svartiskúti. Áður hafði fæðst  Continue Reading »

Sæðistökuvertíð lokið

Í dag 21. desember lauk 53 sæðistökuvertíðinni hjá Sauðfjársæðingastöð/Kynbótastöð ehf. Þátttaka er meiri en í fyrra og veðurfar hefur verið hagstætt fyrir utan hvassviðri við suðurströndina  fyrstu dagana. Ekki er vitað til að sending hafi misfarist vegna veðurs.   Heildarútsending var 18200 skammtar af hrútasæði og miðað við nýtingu síðustu ára gætu verið að 12.000 til  Continue Reading »

Af sauðfjársæðingum

Í dag 10. desember var sent sæði í 2070 ær frá Sauðfjársæðingastöðinni og er það mesta útsending á einum degi í mörg ár. Einn hrútur hefur verið felldur en það er Mínus frá Mýrum 2 í Hrútafirði sem var úr hnjálið á afturfæti.  Ónothæft sæði var úr Muninn frá Yzta Hvammi í Aðaldal þangað til  Continue Reading »

Hrútaskráin komin til dreifingar

Lokið var við að prenta hrútaskránna fyrir 2020-2021 í gær og er hún því komin í hús hér hjá Búnaðarsambandinu að Austurvegi 1 Selfossi. Einnig verður hægt að nálgast hana í þeim sveitaverslunum og þjónustustöðum sem gefa leyfi fyrir því að hún liggi frammi. Frjótæknarnir verða með hana í bílunum amk fyrst um sinn og  Continue Reading »

back to top