Haustfundir BSSL í sauðfjárrækt

Búnaðarsamband Suðurlands í samstarfi við RML og Sláturfélag Suðurlands heldur loksins aftur haustfundi í sauðfjárrækt, eftir óviðráðanlegt hlé síðustu ár.  Hrútaskráin 2022 verður þá komin í hús, þar sem ráðunautar RML lýsa kostum hrútanna. Fundirnir verða eins og undanfarin ár fjórir og mun Sláturfélag Suðurlands bjóða upp á veitingar á fundunum. Eyþór Einarsson frá Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins lýsir kostum hrútanna og ræðir ræktunarstarfið. Vonandi sjá sem flestir áhugamenn um sauðfjárrækt sér fært um að mæta og bændur hvattir til að vera duglegir að nýta sér kosti sæðinganna til að kynbæta fé sitt.

Fundirnir verða haldnir sem hér segir:

Mánudagur 21. nóvember Hótel Smáratún, Fljótshlíð kl. 13:30
Mánudagur 21. nóvember Hótel Selfoss  kl. 20.00
Þriðjudagur 22 .nóvember Hótel Klaustur, Kirkjubæjarklaustri kl. 12:30
Þriðjudagur 22. nóvember Ferðaþjónustan Smyrlabjörgum kl. 20:00


back to top