Bretar sólgnir í íslensk kindaslög

„Hingað til hefur stórum hluta af slögunum verið hent, þannig að þetta er búbót þótt upphæðirnar í spilinu séu ekkert sérlega háar,“ segir Ingvar Már Gíslason, markaðsstjóri Norðlenska. Fyrirtækið hefur selt um hundrað tonn af úrbeinuðum kindaslögum til Bretlandseyja á undanförnu ári. Þar eru þau notuð í kebabgerð.

Kettir geta líka haft ofnæmi fyrir mönnum

Alkunnugt er að ýmsir menn þola illa fínleg hár af kattarfeldi, en sérfræðingar Edinborgarháskóla segja suma ketti, og ýmiss önnur dýr, hafa ofnæmi fyrir mönnum. Þannig valdi húðfrumur og hár manna því að 2% katta eigi við ýmsa ofnæmiskvilla að stríða, svo sem kláða, hnerra og öndunarsjúkdóma á borð við asma.

Umtalsverð aukning á framleiðslu og sölu á nautgripakjöti

Þegar tölur yfir framleiðslu og sölu á nautgripakjöti fyrir síðasta ársfjórðung (des.06-feb.07) eru skoðaðar, má sjá að talsverð aukning hefur orðið á þessu tímabili, m.v. sama tíma fyrir ári. Nemur framleiðsluaukningin 21,3%. Mest munar um aukna framleiðslu UN, en framleiðsla ungnautakjöts hefur aukist um 28,2% á tímabilinu.

Segir rangt að tilboð fyrirtækisins í ostakvóta hleypi upp verði á kvótum

Mjólkursamsalan segir að það sé rangt sem haldið hafi verið fram að tilboð fyrirtækisins í ostakvóta hleypi upp verði á kvótum og innfluttum osti. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu.

Fyrsta brunavarnarkerfi í fjósi hérlendis

Búið er að setja upp fyrsta brunavarnarkerfi í fjósi hérlendis að bænum Glitstöðum í Norðurárdal í Borgarfirði. Vonast er til að þetta framtak efli eldvarnir á bæjum landsins til muna í náinni framtíð.

Heimsins stærsta sláturhús stækkar enn

Smithfield Foods sem er stærsti framleiðandi svínakjöts í heiminum hyggst stækka sláturhús sitt í Tar Heel í Norður-Karólínu fylki í Bandaríkjunum og slátra 1 milljón fleiri svínum á ári en nú.

Vorboðar – sauðburður hafinn og tjaldur kominn í tún

Vorðboðar eru sannarlega komnir í sveitina. Sigurður Hjálmarsson í Vík í Mýrdal segir að tjaldurinn sé kominn í tún og lömb farin að fæðast í fjárhúsum. Í gær sást mikið af álft austan við Vík og gæsir flugu líka yfir.

Fönix og Bláskjár efstir á ungfolasýningu

Hrossaræktarsamtök Suðurlands stóðu fyrir ungfolasýningu síðast liðinn laugardag í Ölfushöllinni á Ingólfshvoli. Fjölmargir áhorfendur mættu til að líta athyglisverða ungfola augum. Úrslit urðu eftirfarandi:

Heimsmet í hveitiuppskeru?

Mike Solari, bóndi á Nýja-Sjálandi, telur sig hafa sett nýtt heimsmet í hveitiuppskeru með 15,36 tonnum á hektara. Um var að ræða hveitiyrkið Savannah og heildarstærð akranna tveggja var 14,5 ha. Heimsmetið hefur ekki verið staðfest að heimsmetabók Guinness.

Afurðastöð Mjólku verði flutt í Borgarnes

Stjórn Mjólku hyggst flytja afurðastöð félagsins úr Reykjavík í Borgarnes og hefur þegar verið rætt við bæjaryfirvöld í Borgarbyggð um lóð undir nýja afurðastöð í bænum. Ólafur M. Magnússon, framkvæmdastjóri Mjólku, segir vel hafa verið tekið í þær hugmyndur hjá bænum.

Jarðarverð hækkaði umtalsvert í fyrra

Á s.l. ári hækkaði jarðarverð í Bretlandi um 15% og á síðustu þremur árum hefur hækkunin numið 50%. Spáð er áframhaldandi hækkun á þessu ári.

Eldur kom upp í fjósi

Síðdegis í gær kom upp eldur kom í flórsköfu í fjósinu á bænum Sólheimum í Hrunamannahreppi. Þegar Jóhann Kormáksson bóndi í Sólheimum hélt út í fjós til að gefa kúnum reyndist fjósið fullt af reyk sem stafaði af eldi í flórsköfumótor.

Ný vefsíða Búnaðarsambands Suðurlands

Búnaðarsamband Suðurlands opnaði í morgun nýja vefsíðu sem er gjörbreytt að útliti. Nýja síðan er hönnuð af Guðmundi S. Jónsyni og Grétari Magnússyni hjá Aicon ehf. á Selfossi og keyrir á MS-SQL server með vefumsjónarkerfinu Aicon. Nýja síðan er nútímalegri í útliti og yfirbragð og öll vinnsla léttari.

Íslendingar vilja innlendar landbúnaðarvörur og eru tilbúnir til að greiða hærra verð fyrir þær en innfluttar

Íslendingar telja gæði innlendra landbúnaðarvara meiri en innfluttra og að mikilvægt sé að hér á landi sé stundaður landbúnaður. Landsmenn telja íslenska bændur ekki bera ábyrgð á háu matarverði á landinu og fólk er reiðubúið til að greiða hærra verð fyrir innlendar landbúnarvörur en innfluttar. Þetta kom fram í ræðu Haraldar Benediktssonar, formanns Bændasamtaka Íslands, við setningu Búnaðarþings 2007 fyrr í dag, en yfirskrift setningarhátíðarinnar er „Sveit og borg – saman í starfi”.

Bændur græða landið

„Bændur græða landið” er samstarfsverkefni Landgræðslu ríkisins og bænda um uppgræðslu heimalanda. Landgræðslan auglýsir nú eftir umsóknum bænda um þátttöku í verkefninu . Þátttakendur í verkefninu fá fjárhagslegan stuðning við uppgræðslu sinna heimalanda og ráðgjöf um hvernig best verði staðið að viðkomandi uppgræðsluverkefni.

Mjólkurframleiðsla dýr á Íslandi

Kostnaður við rekstur kúabúa á Íslandi er mjög mikill og mun meiri en hjá bændum í nágrannalöndunum. Þetta segir Runólfur Sigursveinsson, ráðunautur hjá Búnaðarsambandi Suðurlands.
Runólfur segir að full ástæða sé til að lækka kostnað við mjólkurframleiðslu hér á landi. Afurðaverðið sé hærra hér en í Danmörku. Íslenskir bændur fái rúmar 47 krónur fyrir mjólkurlítrann en danskir kollegar þeirra 21 krónu minna.

Beint frá býli – heimavinnsla og sala afurða

Komin er út handbókin „Heimavinnsla og sala afurða“ sem er afsprengi samstarfshóps um verkefnið „Beint frá býli“. Guðna Ágústssyni, landbúnaðarráðherra, var afhent fyrsta eintakið af handbókinni síðast liðinn þriðjudag á veitingastaðnum Friðriki V á Akureyri sem einkum er þekktur af því að nota íslenskt hráefni úr sinni heimabyggð.

Eru erlend lán fýsileg fyrir bændur?

Útibú Kaupþings á Selfossi og á Hellu stóðu í gær (22.feb.) fyrir fræðslufundi um erlendar lántökur í Árhúsum á Hellu. Fundurinn var vel sóttur en um 50-60 bændur víða af Suðurlandi mættu og greinilegur áhugi á málefninu meðal þeirra. Á fundinum urðu ágætar umræður um framsöguerindi.

Nýtt hesthús risið á Hólum

Við Hólaskóla, háskólann á Hólum, er nú risið eitt glæsilegasta hesthús landsins og verður það væntanlega tekið í notkun á veglegri opnunarhátíð hinn 23. mars næstkomandi. Það er félagið Hesthólar ehf. sem byggir húsið og mun síðan reka það en leigir skólanum til afnota. Að sögn stjórnarformanns félagsins er gert ráð fyrir að byggingarkostnaður verði 250 til 300 milljónir króna. Verið er að leggja lokahönd á verkið þessa dagana.

Háskólafélag Suðurlands

Atvinnuþróunarfélag Suðurlands vinnur nú að stofnun Háskólafélags Suðurlands sem hugsað er sem ígildi háskólaumhverfis á svæðinu. Atvinnuþróunarfélagið hefur gert samning við Primordia -ráðgjöf ehf.um að kanna möguleika á að koma þessu Háskólafélagi af stað. Verkefnið tekur mið af Vaxtarsamningi Suðurlands og ákvæði hans um uppbyggingu klasa á Suðurlandi í tengslum við háskólastarfsemi.

back to top