Verðskrá sauðfjárafurða haustið 2011
Hér er að finna verðsamanburð sem Landssamtök sauðfjárbænda hafa tekið saman. Verðsamanburðurinn miðast við kjötmat og sláturmagn á landinu öllu árið 2010 eins og fyrri ár og tekur tillit til verðskráa afurðastöðva í vikum 35-45. Álagsgreiðslur Markaðsráðs eru ekki meðtaldar sem og einstakra fyrirtækja utan vikna 35-45. Skv. þessari samantekt er hækkun á raunverði lambakjöts til bænda rétt um 72 krónur á kíló lambakjöts en verð á kjöti af fullorðnu ríflega tvöfaldast. Meðalverðin eru námunduð í töflunni að næstu heilu krónu en eru reiknuð út með fullri nákvæmni. Heildarmeðaltalið er þó birt með aukastöfum til að draga betur fram mun á verði einstakra fyrirtækja, þar sem hann er í sumum tilvikum afar lítill.
| 5. sept. 2011 | Lömb | Fullorðið | Samtals |
| KS og SKVH | 484 kr. | 248 kr. | 474,47 kr. |
| SV | 495 kr. | 248 kr. | 484,92 kr. |
| SAH | 495 kr. | 248 kr. | 484,71 kr. |
| SS | 493 kr. | 247 kr. | 483,78 kr. |
| Norðlenska | 493 kr. | 252 kr. | 483,75 kr. |
| Fjallalamb | 472 kr. | 248 kr. | 463,27 kr. |
| Landsmeðaltal 2011 | 493 kr. | 248 kr. | 483,28 kr. |
| Landsmeðaltal 2010 | 421 kr. | 117 kr. | 392,85 kr. |
| Viðmiðunarverð LS | 583 kr. | 306 kr. | 573 kr. |






