Yfirlitssýning kynbótahrossa á Gaddstaðaflötum
Yfirlitssýning kynbótahrossa á Gaddstaðaflötum verður á morgun fimmtudaginn 10. júní og hefst kl 9.00. Röðun flokka verður eftirfarandi:
Flúor í öllum gróðursýnum undir þolmörkum búfjár
Búið er að efnagreina gróðursýni sem tekin voru þann 1. júní s.l. Niðurstöðurnar sýna að engin ástæða er til að óttast flúoreitrun í búfénaði á beit þar sem öll sýni eru neðan þolmarka sauðfjár, nautgripa og hrossa.
Niðurstöðurnar eru eftirfarandi:
Reynt að hefta öskufok með uppgræðslu
Í gær hóf Landgræðslan sáningu í um 400 hektara lands á Sólheimasandi í því skyni að reyna að hefta öskufjúk. Síðustu daga hefur svifryk víða um land farið langt yfir heilsuverndarmörk. Nánast óbúandi er við öskufokið í byggðinni undir austanverðum Eyjafjöllum, Skógum, Sólheimabæjum, í Fljótshlíð og Merkurbæjum þegar það er hvað verst.
Á næstu dögum mun Landgræðslan sá níu tonnum af fræi og dreifa 60 tonnum af áburði yfir öskulagið á Sólheimasandi.
Mjög lítil hætta á flúoreitrun í búfé
Ítrekað er að samkvæmt þeim gróðursýnum sem tekin hafa verið virðist ekki vera ástæða til þess að halda búfénaði inni við vegna öskufalls og/eða -fjúks. Síðustu sýni sem tekin voru sýndu litla flúormengun og voru í öllum tilfellum um eða vel undir þolmörkum nautgripa og hrossa en þolmörk sauðfjár eru mun hærri.
Sláttur er hafinn undir Eyjafjöllum
Sláttur er hafinn undir Eyjafjöllum. Ásgeir Árnason, bóndi í Stóru-Mörk byrjaði að slá í gær en Stóra-Mörk stendur við norðurmörk Eyjafjalla og er síðasti bærinn sem ekið er fram hjá á leiðinni inn í Þórsmörk. Ekki er vitað hvaða hvaða áhrif askan mun hafa á hey en það verður kannað á næstu dögum. Í því skyni verða tekin sýni á nokkrum bæjum undir Eyjafjöllum og hey flutt á tilraunabúið á Stóra Ármóti þar sem verkun og lystugleiki heysins verður kannaður.
SS hækkar verð á nautakjöti um rúm 8% til jafnaðar
Sláturfélag Suðurlands hækkar verð á nautakjöti til bænda frá og með deginum í dag, þ.e. mánudeginum 7. júní. Einstakir flokkar hækka á bilinu 6,78% til 17,71%, en vegin meðaltalshækkun er 8,40%. Jafnframt hækkar flutningskostnaður um 8% úr 12 kr/kg. í 13 kr/kg. Heimtökugjald er óbreytt.
Sláturhúsið á Hellu hækkar verð til bænda verulega
Frá og með mánudeginum 7. júní n.k. mun verða veruleg hækkun á afurðaverði Sláturhússins á Hellu. Þannig munu allir kjötflokkar, utan kálfakjöts, hækka um 8%. Eftir þessa verðbreytingu greiðir Sláturhúsið á Hellu langhæsta verð til bænda á landinu og greiðir hæsta verðið á landinu í öllum 31 gæðaflokkunum. Samhliða þessari hækkun hefur heimtökukostnaður verið hækkaður um 10 krónur pr. kíló og þá mun flutningskostnaður hækka einnig.
Mikill verðmunur á bæði rúlluplasti og rúlluneti
Landssamband kúabænda birti á föstudaginn niðurstöður verðkönnunar sambandsins á rúlluplasti og rúlluneti. Fram kemur í könnuninni að all verulegur munur er á verði til bænda á báðum rekstrarvörum. Þá kemur jafnframt nokkuð á óvart, að mjög margir aðilar flytja þessar rekstrarvörur til landsins. LK kannaði verð á 75 cm rúlluplasti og 123 cm breiðu rúlluneti. Lægst var verðið á plastinu hjá fyrirtækinu Búvís og hæst var verðið hjá fyrirtækinu Vélaval-Varmahlíð og munar þar 18% á hæsta og lægsta verði. Meðalverðið var 6,93 kr/meter plasts og var hæsta verðið 10,1% yfir meðalverðinu.
Breytingar á tímasetningum kynbótasýninga á Gaddstaðaflötum
Á fundi með knöpum 2. júní síðastliðinn í Félagsheimili Sleipnis kom fram að þeir teldu engan grundvöll fyrir því að vera með sýningu fyrr en í endaðan júní, ástandið væri þannig á hrossunum. Einnig óskuðu þeir eftir sýningu í lok júlí. Búnaðarsamband Suðurlands hefur því ákveðið að sýningunni verði frestað til 28. júní og standi út þá viku. Það mun þó verða dæmt 8. og 9. júní í næstu viku til að koma til móts við þá sem þess óskuðu. Yfirlitssýningin verður fimmtudaginn 10. júní.
Ekki ástæða til að halda búfé inni vegna hættu á flúoreitrun
Komnar eru niðurstöður á efnagreiningum flúors í gróðursýnum sem tekin voru 26. maí s.l. Samkvæmt þeim er ekki ástæða til þess að óttast flúormengun í gróðri eins og staðan er. Þolmörk nautgripa og sauðfjár eru 30-40 mg/kg F þurrefnis og 70-100 mg/kg F þurrefnis hjá sauðfé. Öll sýnin eru vel undir þolmörkum sauðfjár, sýni á Raufarfelli er við þolmörk nautgripa og hrossa og eina sýnið sem er yfir þeim er frá Efstu-Grund. Það var hins vegar mjög lítið sýni og verður að taka niðurstöðum þess með fyrirvara.
Samkvæmt þessu er ekki ástæða til þess að halda búfénaði inni vegna hættu á flúoreitrun.
Niðurstöðurnar eru eftirfarandi:
Hrafnhetta 153 í Hólmum er fallin
Íslandsmethafinn í æviafurðum, Hrafnhetta 153 í Hólmum í A-Landeyjum, var felld þann 15. maí s.l. eftir sérlega farsæla og langa ævi. Hrafnhetta var fædd í febrúar 1992, dóttir Haka 88021, og var því orðin 18 vetra.
Hún bar fyrsta kálfi sínum 24. október 1994 og hafði mjólkað í 15,2 ár samtals 111.194 kg mjólkur eða 7.315 kg að meðaltali á ári.
Kanna hvort flýta megi kvótamarkaði
Jón Bjarnason, Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur ákveðið að setja á fót vinnuhóp ráðuneytisins, Landssambands kúabænda, Bændasamtaka Íslands og MAST sem mun hafa það hlutverk að móta reglur um mjólkurkvótamarkað. Vinnuhópurinn mun jafnframt skoða hvort unnt verði að flýta gildistöku uppboðsmarkaðarins, en miðað við núverandi reglugerð verður fyrsta uppboð ekki fyrr en 1. desember nk. Þetta var niðurstaða fundar forsvarsmanna LK og ráðherra í gær.
Afleysingar á gossvæðinu
Bændasamtök Íslands, Búnaðarsamband Suðurlands, Félag kúabænda á Suðurlandi og Samtök afurðastöðva í mjólkuriðnaði óska eftir að ráða starfsmann í afleysingar fyrir bændur á áhrifasvæði eldgossins í Eyjafjallajökli. Um er að ræða tímabundið starf fram að áramótum.
Leiðbeiningar um þrif á hesthúsum og -kerrum vegna kvefpestar
Vegna þess smitsjúkdóms sem nú herjar á hross er mælt með að hestamenn gæti ítrasta hreinlætis. Leiðbeiningar um þrif og sótthreinsun á hesthúsum og hestakerrum, sem hestamenn eru hvattir til að hafa til hliðsjónar, hafa nú verið settar inn á heimasíðu Matvælastofnunar.
Nefnd skipuð um endurskoðun búnaðargjalds
Bændasamtök Íslands hafa nú skipað nefnd sem mun endurskoða innheimtu búnaðargjaldsins. Nefndin er skipuð í kjölfar ályktunar frá Búnaðarþingi 2010 og er starfssvið hennar að finna leiðir til þess að lækka búnaðargjaldið, sem og að skoða leiðir til að fjármagna félagskerfið með öðrum hætti.
SS lækkar verð á kjarnfóðri um 4%
Frá og með deginum í dag, 1. júní, lækkar SS verð á kjarnfóðri um 4%. Eftir þessa lækkun er lægsta verð á 16% kúablöndu 53.458 kr. pr. tonn án vsk.
Hrossaræktendur og knapar á Suður- og Suðvesturlandi
Fundur verður haldinn í félagsheimili Sleipnis á Selfossi annað kvöld, miðvikudagskvöldið 2. júní kl. 20:00. Fundarefnið er skipulag kynbótasýninga á Suður- og Suðvesturlandi það sem eftir lifir sumars.
Landsmóti hestamanna frestað
Ákveðið var á fundi hagsmunaaðila í hrossarækt í dag að fresta landsmóti hestamanna í sumar vegna hrossapestarinnar sem herjað hefur á íslenska stofninn. Ríkisútvarpið hafði eftir Haraldi Þórarinssyni, formanni stjórnar landsmótsins, að þetta hafi verið erfið en nauðsynlega ákvörðun.
Stjórn LK lýsir óánægju með frystingu kvótaviðskipta til 1. des.
Stjórn Landssambands kúabænda samþykkti í síðustu viku bókun um nýja reglugerð sjávarútvegs- og landbúnaðrráðherra um mjólkurkvótamarkað. Þar kemur fram ánægja með uppsetningu miðlægs markaðar með mjólkurkvóta en óánægja með frystingu á viðskiptum með mjólkurkvóta fram til 1. des. n.k. Stjórn LK vill flýta fyrsta markaði til 15. september n.k. Þessi óánægja er mjög í takt við raddir kúabænda víðs vegar um land.
Bókunin fer hér á eftir:
Heymiðlun vegna eldgossins
Á vegum samtaka bænda og sveitarfélaganna Rangárþings eystra, Mýrdalshrepps og Skaftárhrepps hefur verið sett á fót heymiðlun með það að markmiði að tryggja þeim bændum sem ekki hafa aðstöðu til þess að afla þeirra viðbótarheyja sem þarf vegna tjónsins af völdum gossins aðgang að góðu heyi.






