Ekki ástæða til að halda búfé inni vegna hættu á flúoreitrun

Komnar eru niðurstöður á efnagreiningum flúors í gróðursýnum sem tekin voru 26. maí s.l. Samkvæmt þeim er ekki ástæða til þess að óttast flúormengun í gróðri eins og staðan er. Þolmörk nautgripa og sauðfjár eru 30-40 mg/kg F þurrefnis og 70-100 mg/kg F þurrefnis hjá sauðfé. Öll sýnin eru vel undir þolmörkum sauðfjár, sýni á Raufarfelli er við þolmörk nautgripa og hrossa og eina sýnið sem er yfir þeim er frá Efstu-Grund. Það var hins vegar mjög lítið sýni og verður að taka niðurstöðum þess með fyrirvara.
Samkvæmt þessu er ekki ástæða til þess að halda búfénaði inni vegna hættu á flúoreitrun.
Niðurstöðurnar eru eftirfarandi:









































Staður Flúor mg/kg þurrefnis
Butra 29
Raufarfell 42
Þorvaldseyri 9
 Núpur 12
 Voðmúlastaðir  5
Sólheimahjáleiga  27
Efri-Ey   5
Giljur   15
Efsta-Grund 53 (mjög lítið sýni)
Hraungerði   10
Hlíð  29 
Ytri-Ásar  5

 


 



back to top