Áburður

Til meginnæringarefna jurta teljast sex frumefni, köfnunarefni, fosfór, kalí, kalsíum, magnesíum og brennisteinn. Af hverju þessara efna er í uppskeru frá 10 og upp í yfir 100 kg af hektara. Snefilefni eru þau frumefni sem jurtirnar þurfa minna en 1 kg á hektara á ári þótt þær taki oft meira upp af þeim en þær þurfa.

Ekki er sjálfgefið að allir viti fyrir hvað skammstafanir áburðarefna standa.
Skal bætt úr því hér:

Meginnæringarefni jurta:

  • N = köfnunarefni
  • P = fosfór
  • K = kalí
  • Ca = calsíum
  • Mg = magnesíum
  • S = brennisteinn

    Snefilefni sem eru jurtanærandi:

  • Cl = klór
  • Na = natríum
  • Ma = mangan
  • Fe = járn
  • B = bór
  • Zn = zink
  • Cu = kopar
  • Mo = molybden
  • Co = kóbolt
    Snefilefni sem ekki eru jurtanærandi en eru dýrum nauðsynleg og því stundum sett í áburð til að tryggja aðgengi búfjár að þeim.
  • Se = selen
  • I = joð

 

back to top