Stigahæstu veturg. hrútar 2005






Flosi 04-181 frá Borgarfelli
Veitt voru verðlaun fyrir veturgamla hrúta 2005 í Árnessýslu, Rangárvallasýslu, Vestur-Skaftafellssýslu og Austur-Skaftafellssýslu. Alls voru verðlaunaðir tólf veturgamlir hrútar, þrír í hverri sýslu. Athyglisvert er að Hylur 01-883 á sjö af þessum verðlaunahrútum.

Fyrirkomulag á röðun hrútanna var þannig að allir hrútar komu til greina sem fengu 35,5 stig eða meira í samanlögð stig fyrir bak, malir og læri. Aðeins þeir hrútar komu til röðunnar þar sem skýrslum hafði verið skilað til Bændasamtaka Íslands og gögn borist til baka. Við röðunina var eingöngu notast við sláturupplýsingar hrútanna og sett sem skilyrði að hver hrútur ætti að lágmarki 10 sláturlömb. Alls komu 108 hrútar til röðunar þar af voru 28 í Árnessýslu, 24 í Rangárvallasýslu, 30 í Vestur-Skaftafellssýslu og 26 í Austur-Skaftafellssýslu. Við röðunina var horft til þess að hrútarnir væru að gera útslag á sínu búi hvað varðar gerð og fitu, einnig að hrútarnir væru að gefa fallþyngd um eða yfir meðaltali búsins.

Misjafnt var eftir sýslum hvernig gekk að raða hrútunum, í Vestur-Skaftafellssýslu var það þó ekkert vandamál þar sem útslag veturgömlu hrútanna á Borgarfelli er gríðarlegt og röðuðu þeir sér í þrjú eftstu sætin. Í gangi er afkvæmaprófun fyrir sæðingastöðvarnar á Borgarfelli og verður mjög spennandi að sjá niðurstöður hennar í haust.


Niðurstöður úr verðlaunaveitingunum má nálgast í eftirfarandi pdf-skjali:

Hæst dæmdu veturg. hrútar 2005



Þú getur sótt
Acrobat Reader hér .

back to top