Rekstrargreining-SÓMI

Rekstrargreining sem byggir á bókhaldi búsins, þ.e. ársreikningi og skýrsluhaldi sauðfjárræktar. Einkum er horft á tekjur og gjöld á vetrarfóðraða kind og fundnir veikir og sterkir þættir í rekstrinum. Samanburður er gerður á rekstri búsins milli ára og sett upp á myndrænan og auðskiljanlegan hátt. Með því móti er hægt að sjá á augabragði hvert hver rekstrarþáttur stefnir. Auk þess sést samanburður við önnur bú í búreikningum þannig að hver og einn geti borið saman einstaka rekstrarþætti búsins við önnur bú og/eða meðalbúið.

Hér til hliðar má sjá það form á rekstrargreiningu sem sauðfjárbændur fá í hendur. Til samanburðar eru meðaltöl annarra sauðfjárbúa.

back to top