Kynbótasýning á Selfossi

Erum byrjuð að taka við skráningum á kynbótasýninguna á Selfossi sem verður dagana 14. til 25. maí. Síðasti greiðslu- og skráningadagur er 4. maí. Tekið er við skráningum hjá Búnaðarsambandi Suðurlands í síma 480-1800 eða á heimasíðunni www.bssl.is. Á sömu heimasíðu verður röðun hrossa birt þegar búið er að raða niður á dagana. Það skal skýrt tekið fram að þetta er sýningaráætlun, þannig að vel getur verið að það þurfi að fækka dögum þegar ljóst er hversu mörg hross verða skráð. Lokað er fyrir skráningu um leið og sýning er fullbókuð þó svo skráningafrestur sé ekki útrunninn.

Sýningargjald á hvert hross er 18.500 kr. Ef hross er einvörðungu skráð í byggingardóm eða hæfileikadóm er sýningargjaldið 13.500 kr. Það er nauðsynlegt er að geta þess um leið og hrossið er skráð að það eigi einungis að mæta í byggingardóm eða hæfileikadóm, ef það er ekki gert er litið svo á að það eigi að fara í fullnaðardóm. Hafi greiðsla ekki borist í síðasta lagi í lok síðasta skráningardags er viðkomandi hross ekki skráð í mót. Sýningargjöld er hægt að greiða á skrifstofu Búnaðarsambandsins að Austurvegi 1 á Selfossi eða inn á reikning nr. 0152-26-1618, kt: 490169-6609. Ef greitt er í banka er mikilvægt að biðja bankann um að faxa strax greiðslukvittun til Búnaðarsambandsins, faxnúmerið er 480-1818. Merkið greiðslu með númeri og nafni hrossins. Ef greitt er í gegnum netbanka vinsamlegast sendið greiðslukvittun á netfangið helga@bssl.is. Hægt er að greiða sýningargjöld með kreditkorti. Endurgreiðsla á sýningargjöldum kemur aðeins til greina ef látið er vita um forföll fyrir kl. 16:00 síðasta virka dag fyrir sýningu. Þannig ef sýning hefst á mánudegi þarf að vera búið að afskrá hrossið á föstudegi fyrir lokun skrifstofu. Ekki er um fulla endurgreiðslu að ræða heldur einungis 11.000 kr. fyrir hross sem hefur verið skráð í fullnaðardóm en 8.000 kr. fyrir þau hross sem hafa einungis verið skráð í byggingar- eða hæfileikadóm. Slasist hross eftir að sýning hefst er hægt að framvísa læknisvottorði til að fá endurgreiddan hluta af sýningargjaldi.
Munið að kynna ykkur reglur um einstaklingsmerkingar, járningar, blóðsýni, DNA-sýni og spattmyndir á heimasíðunni www.bssl.is.


Næsta sýning í umsjón Búnaðarsambands Suðurlands er:


Héraðssýning Gaddstaðaflötum dagana 29. maí til 8. júní
Tekið við skráningum í síma 480-1800 dagana 15. til 18. maí


Búnaðarsamband Suðurlands


Kynbótasýning á Selfossi

Núna í dag 2. maí og á morgun 3. maí er verið að taka við skráningum á kynbótasýninguna á Selfossi en hún hefst 9. maí. Tekið er við skráningum í síma 480-1800 og á heimasíðu Búnaðarsambands Suðurlands www.bssl.is. Sýningargjald á hvert hross er 15.000 kr fyrir fullnaðardóm en sé hrossið eingöngu skráð í byggingardóm er sýningargjaldið 10.500 kr. Hafi greiðsla ekki borist í síðasta lagi í lok síðasta skráningardags þ.e. 3. maí er viðkomandi hross ekki skráð í mót.
(meira…)


back to top