Lágmarksverð mjólkur

Afurðastöðvarverð meðalmjólkur til framleiðenda er 80,43 kr lítrinn. Gildir frá 1. júlí 2012.

Afurðastöðvarverð mjólkur 1. júlí 2011 – 30. júní 2012: 77,63 kr/l.

Afurðastöðvarverð mjólkur 1. feb. 2011 – 30. júní 2011: 74,38 kr/l.

Afurðastöðvarverð mjólkur 1. nóv. 2008 – 31. jan. 2011: 71,13  kr/l.

Afurðastöðvarverð mjólkur 31. mars – 1. nóv. 2008: 64,00  kr/l.

Afurðastöðvarverð mjólkur 1. jan.- 31. mars 2008: 49,96 kr/l. 

Afurðastöðvarverð mjólkur 1. nóv.- 31. des. 2007: 49,26 kr/l. 

Efnainnihald meðalmjólkur.
Efnainnihald meðalmjólkur (grundvallarmjólkur) fyrir verðlagsárið 2012 er eftirfarandi:

Fita = 4,10 % og Prótein = 3,33 %.

Vægi efnaþátta í afurðastöðvarverði mjólkur er eftirfarandi:

Fita = 25% og prótein = 75%

Verð á hverri fitu- og próteineiningu er því eftirfarandi: 

Fita 4,9043 kr/ein. og prótein 18,1149 kr/ein.

Útreikningur á verði til framleiðenda   verður því eftirfarandi:
(4,9043 * F%) + (18,1149 * P%) = kr. á lítra mjólk.
(4,9043 * fitueiningar í mánuðinum) + (18,1149 * próteineiningar í mánuðinum) = Samtals greitt fyrir mjólk innlagða í mánuðinum.

Beingreiðslur
Beingreiðsla er framlag úr ríkissjóði til framleiðenda mjólkur og greiðist mánaðarlega úr ríkissjóði til handhafa beingreiðslna, sbr. 55. gr. laga nr. 99/1993. Beingreiðslur á verðlagsárinu 2012 verða 5.160 m.kr. og greiðslumark mjólkur er 114.500.000 lítrar. Beinar greiðslur á verðlagsárinu 2012 verða því að jafnaði 45,07 kr/ltr.  Dreifing beingreiðslna og fráviksmörk skulu vera með eftirfarandi hætti: 

 

a)

47,67% beingreiðslna skal greiða greiðslumarkshöfum óháð framleiðslu, að því tilskildu að framleiðsla lögbýlisins sé a.m.k. 90% greiðslumarks á tímabilinu. Greiða skal 1. hvers mánaðar, 1/12 hluta, í fyrsta sinn 1. janúar 2012.

 

b)

35,45% beingreiðslna skal greiða greiðslumarkshöfum eftir framleiðslu allt að greiðslumarki hvers framleiðanda. Greiða skal 1. hvers mánaðar fyrir innlegg næstsíðasta mánaðar, í fyrsta sinn 1. mars 2012.

 

c)

16,88% beingreiðslna skal ráðstafa til greiðslumarkshafa, vegna framleiðslu innan greiðslumarks, eftir einstökum mánuðum, samkvæmt neðanfelldri töflu.

 

Janúar

0%

Febrúar

0%

Mars

0%

Apríl

0%

Maí

0%

Júní

0%

Júlí

10%

Ágúst

15%

September

15%

Október

20%

Nóvember

20%

Desember

20%

back to top