Úrslit í ljósmyndakeppni BSSL og TRS 2007

Í dag voru afhent verðlaun fyrir bestu ljósmyndirnar í ljósmyndakeppni BSSL og TRS 2007. Fyrstu verðlaun hlaut Jóhanna S. Hannesdóttir í Stóru-Sandvík fyrir myndina „Skuggaleg Skjalda“. Í öðru sæti lenti Magnús Hlynur Hreiðarsson á Selfossi og í þriðja sæti Jónas Erlendsson í Fagradal.






Guðmundur Jóhannesson hjá BSSL, Magnús H. Hreiðarsson, Jónas Erlendsson og Ragnhildur Harðardóttir hjá TRS.
Um 70 myndir bárust í keppnina og voru bestu myndirnar valdar þannig að starfsmenn BSSL og TRS kusu 10 myndir til birtingar á vefnum þar sem notendur www.bssl.is gátu síðan valið þá mynd sem þeim fannst best.
Verðlaun voru gefin af BSSL og TRS þannig að TRS gaf Canon PowerShot G7 myndavél í 1. sætið og 500 Gb utanáliggjandi harðan disk í annað sætið en BSSL gaf Lowepro myndavélarbakpoka í þriðja sætið.

BSSL og TRS þakka öllum fyrir þátttökuna um leið og við óskum verðlaunahöfum til hamingju með árangurinn.

Röð 10 bestu myndanna er eftirfarandi:

































1. sæti
Skuggaleg Skjalda
Jóhanna S. Hannesdóttir
2. sæti
Ég var að koma í heiminn
Magnús Hlynur Hreiðarsson
3. sæti
Smalað á jökli
Jónas Erlendsson
4.-5. sæti
Rúlluhirðing
Jóna Sigþórsdóttir
4.-5. sæti
Margt býr í kýrhausnum
Ásta Þorbjörnsdóttir
6.-7. sæti
Guffi
Aldís Jónsdóttir
6.-7. sæti
Hestar
Aldís Jónsdóttir
8. sæti
Guffi
Karen Jónsdóttir
9. sæti
Brosað í heyskapnum
Jónas Erlendsson
10. sæti
Sólarlag í sveitinni
Kristín Ólafsdóttr


back to top