Staða landbúnaðar í samningaferlinu við ESB verði skýrð

Bændasamtök Íslands hafa sent utanríkisráðherra og utanríkismálanefnd bréf þar sem þess er krafist að staða landbúnaðar í samningaferlinu við Evrópusambandið verði skýrð.
Samtökin telja að bæði stjórnvöld og Evrópusambandið hafi þrýst verulega á um að stjórnsýsla og löggjöf verði aðlöguð að reglum Evrópusambandsins meðan á aðildarviðræðunum stendur og áður en aðildarumsóknin hefur fengið stjórnskipulega meðferð. Það sé í andstöðu við það sem sagt var þegar aðildarumsóknin var send.

Haraldur Benediktsson, formaður Bændasamtakanna, segir að bændum sé nú gert að breyta starfsháttum sínum svo þeir samræmist því sem tíðkast í löndum Evrópusambandsins. Til að mynda er þeim gert að breyta upplýsingakerfum sínum og greiðslukerfum. Bændur séu óánægðir með þetta.„Það hefur verið staðfest í vinnu samningahóps Íslands um landbúnaðarmál að reglur ESB ganga gegn varnarlínum þeim sem Bændasamtökin hafa dregið upp. Aðlögun að stjórnkerfi ESB vegna aðildarumsóknarinnar er þegar hafin í ýmsum málaflokkum. Það er í fullri andstöðu við það sem sagt var þegar umsókn Íslands um aðild var send. ESB virðist líta svo á að Ísland verði aðildarríki og fjöldi starfsmanna sambandsins hefur það eitt hlutverk að vinna að þeirri niðurstöðu. Við bændur krefjumst þess því að tekin verði af öll tvímæli um þessi mál og staða landbúnaðar í aðildarviðræðunum verði skýrð hið fyrsta.“, segir Haraldur jafnframt.


„Síðan höfum við þessa yfirlýsingu utanríkisráðherra um að ekkert eigi að gera fyrr en kosning um aðildarsamning liggi fyrir en það er ekki rétt að það geti gengið upp,“ segir hann. Bændasamtökin vilji því að staða landbúnaðarins í aðlögunarviðræðum við ESB verði skýrð. „Við viljum fá botn í hvað þetta er svo við vitum hvað er að gerast,“ segir Haraldur.

Bréf Bændasamtakanna til utanríkisráðuneytisins


back to top