Nýr og endurbættur bondi.is

Vefur Bændasamtaka Íslands hefur fengið andlitslyftingu en í dag sunnudaginn 2. mars 2008 er nýi vefurinn opnaður. Með vefnum vonast Bændasamtökin til þess að geta veitt viðskiptavinum sínum enn betri þjónustu en áður á vefnum. Með tíð og tíma verða kynntar nýjungar sem eiga vafalaust eftir að gagnast bændum og öðrum notendum vel, segir á forsíðu nýja vefsins.

Fyrst um sinn verður þó eldra efni á gömlu síðunni aðgengilegt á vefnum. Um gríðarmiklar upplýsingar er að ræða og verða þær færðar að hluta til yfir á nýja vefinn þegar fram líða stundir. Netverjar þurfa því ekki að örvænta ef eitthvað efni finnst ekki á nýja vefnum sem áður var aðgengilegt á bondi.is.


Útlitshönnuður vefsins er Hörður Kristbjörnsson en verkinu stjórnuðu Erla Hjördís Gunnarsdóttir og Tjörvi Bjarnason á útgáfu- og  kynningarsviði Bændasamtakanna. Hugbúnaðarfyrirtækið Eskill sá um forritun en vefnum er stjórnað með vefumsjónarkerfinu Lisa.


back to top