Landskeppni smalahunda haldin að Fjalli á Skeiðum.

Landskeppni smalahunda verður haldinn að Fjalli á Skeiðum helgina 24-25 ágúst næstkomandi og hefst keppni 24.ágúst kl 10:00. Úrslit fara fram 25.ágúst og hefjast kl. 10:00 Smalahundadeild Árnessýslu heldur keppnina, deildin var stofnuð árið 2009 og eru 40 félagsmenn í henni, tilgangur deildarinnar er að efla þjálfun, keppni og fræðslu um smalahunda. Síðast héldum við keppnina árið 2009 að Miðengi í Grímsnesi og tókst það vel. Vonumst við til að sjá sem flesta Sunnlendinga á þessum skemmtilega viðburði. Veitingar til sölu. 

Stjórn Smalahundadeildar Árnessýslu.

 


back to top