Haustfundir sauðfjárræktarinnar 2012

Hinir árlegu haustfundir sauðfjárræktarinnar verða haldnir 21. og 22. nóvember nk. Fundað verður á eftirtöldum stöðum:
Miðvikudaginn 21. nóvember:
Hótel Smyrlabjörg Suðursveit ………. kl. 13:30
Hótel Klaustur Kirkjubæjarklaustri …. kl. 20:00

Fimmtudaginn 22. nóvember:
Hótel Hvolsvöllur Hvolsvelli …………. kl. 14:30
Félagsheimilið Þingborg …………….. kl. 20:00

Á fundunum verður farið yfir hauststörfin, hrútakostur Sauðfjársæðingastöðvar Suðurlands kynntur og farið yfir starfsemi stöðvarinnar. Endað verður á verðlaunaveitingum hrúta eftir kaffihlé.

SLÁTURFÉLAG SUÐURLANDS, YARA áburður og DLG fóður gefa verðlaunin.

Kaffiveitingar eru í boði FÓÐURBLÖNDUNAR, LÍFLANDS og SAUÐFJÁRSÆÐINGASTÖÐVAR SUÐURLANDS.

Nýútgefinni HRÚTASKRÁ verður dreift á fundunum.

Sauðfjárræktarfólk er hvatt til að fjölmenna á fundi
Búnaðarsamband Suðurlands


back to top