Haustfundir BSSL í sauðfjárrækt 2013

Haustfundir sauðfjárræktarinnar verða haldnir á fjórum stöðum í næstu viku.  Byrjað verður í félagsheimilinu Þingborg miðvikudaginn 20. 11. kl. 14.00. Um kvöldið verður svo fundur í félagsheimilinu Heimalandi undir Eyjafjöllum kl. 20.00.  Þann 21.11 verður svo byrjað á  Hótel Smyrlabjörgum og að lokum verður fundur kl. 20.00 á Hótel Klaustri Kirkjubæjarklaustri.  

Sauðfjárræktarráðunautar Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins Eyþór Einarsson og Fanney Ólöf Lárusdóttir fara yfir hauststörfin.  Sveinn Sigurmundsson kynnir hrútakost Sauðfjársæðingastöðvar Suðurlands.  Endað verður á verðlaunaveitingum hrúta eftir kaffihlé.  Verðlaun fyrir lambhrúta eru gefin af Fóðurblöndunni og Blup-verðlaun eru gefin af Jötunn vélum ehf. 

Léttar kaffiveitingar í boði Sláturfélags Suðurlands og Búnaðarsambands Suðurlands

Nýútgefinni HRÚTASKRÁ verður dreift á fundunum

Sauðfjárræktarfólk hvatt til að mæta. 


back to top