Veffræðsla LK – Hvernig bæti ég reksturinn á mínu búi?

Hvernig bæti ég reksturinn á mínu búi? er tíundi fyrirlestur vetrarins.  Fyrirlesari er Runólfur Sigursveinsson fagstjóri í rekstri, hlunnindum og nýbúgreinum hjá Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins.  Áætluð birting á þessum fyrirlestri er 2. mars 2015.

Veffræðsla Landssambands kúabænda er nú send út þriðja árið í röð.  Tilraunaárin tvö eru liðin og ánægjan það mikil að ákveðið var að halda áfram.  Hægt er að hlusta aftur og aftur á erindin eftir að þau hafa verið birt.   Rétt er að minna á að allir sem hafa áhuga geta fengið lykilorð og þannig aðgengi að bæði nýjum fyrirlestrum og þeim hafa verið sendir út. Til þess að fá lykilorð þarf einungis að senda tölvupóst á netfangið skrifstofa@naut.is með nafni og heimilisfangi.

Nánar á naut.is


back to top