Um greiðslur á geymslugjaldi samkvæmt sauðfjársamningi

Vart hefur orðið misskilnings þess efnis að von sé á geymslugjaldsgreiðslu nú fyrir áramótin til sauðfjárbænda. Svo er þó ekki. Ástæðan kann að vera sú að greiðsla fór fram í nóvember 2010 (vegna ársins 2010) en síðan aftur í febrúar sl. (vegna ársins 2011). Árið 2009 og fyrr gengu þessar greiðslur til sláturhúsanna. Eftir að því var hætt fá sláturhúsin engar greiðslur samkvæmt sauðfjársamningi.

Greiðsla fer næst fram í febrúar 2012 (vegna ársins 2012).  Upphæðin deilist á allt innlagt kindakjöt (bæði af lömbum og öðru sauðfé), allt árið 2011, einnig heimtekið. Þar á eftir verður greitt í febrúar 2013 vegna framleiðslu 2012 o.s.frv. meðan sauðfjársamningurinn er í gildi.


Áætluð fjárhæð er um 40 kr/kg sem er mjög svipað og greitt var í febrúar sl.


Fjárveitingin hækkar um 5% skv. sauðfjársamningi, en framleiðslan virðist ætla að aukast um áþekkt hlutfall svo útkoman verður svipuð pr. kg.


Öll fjárveitingin sem greidd er til markaðsstarfs og birgðahalds skv. sauðfjársamningi gengur til þessara greiðslna.


back to top