Skipulagsbreyting hjá Kynbótastöð ehf

Um áramótin tekur í gildi nýtt svæðaskipulag fyrir frjótækna á Suðurlandi. Svæðunum fækkar úr fjórum í þrjú;

  1. Frá Lambhaga á Rangárvöllum og austur að Lækjarbakka í Mýrdalshreppi. Bæir í Rangárþingi eystra, Mýrdalshreppi og hluti af Rangárþingi ytra. Hermann Árnason Hvolsvelli.
    Pantanir í síma 871-1410 og farsími 894-7149
  2. Frá Selalæk á Rangárvöllum vestur að Þjórsá. Neðri hluti Árnessýslu og Skeið fyrir utan Reykjabæina og Ósabakka. Guðmundur Jón Skúlason Skálateigi í Flóahreppi.
    Pantanir í síma 871-2056 og farsími 894-7148
  3. Uppsveitir Árnessýslu, ásamt Reykjabæjunum, Ósabakka , bæjum í Grímsnesi og Laugardal. Úlfhéðinn Sigurmundsson Haga 2 Skeiða og Gnúpverjahreppi.
    Pantanir í síma 871- 5563 og farsími 863-7144. Hvert svæði telur rétt um 3.000 kýr  ásamt kvígum sem sæddar eru. Vinnuálag frjótækna eykst og afar mikilvægt að aðstaða við sæðingar sé sem best og kýrnar sem sæða á séu teknar frá og tilbúnar.  Pantanasíminn 871-8611 verður aflagður en bændur sem hringja í hann fá tilkynningu um breytingar.

back to top