Skeljungur birtir áburðarverð
Skeljungur hefur nú birt áburðarverðskrá sína en söluaðili á Suðurlandi er Búaðföng á Hvolsvelli. Skeljungur flytur inn áburð frá Carrs í Skotlandi og selur undir vörumerkinu Sprettur hérlendis. Verðin hækka nokkuð frá fyrra ári. Ef miðað er við bestu kjör, þ.e. 7% staðgreiðsluafslátt 2009 og 10% pöntunar- og staðgreiðsluafslátt 2010, hækka verðin 1-13% þó með þeim undantekningum að tegundirnar 22-7-6 og 20-12-8 eru á sama verði og í fyrra og 20-10-10 og 16-15-12 lækka um 2%. Þar er miðað við gengi GBP frá 18. feb. 2009 sem var 162,20 og gengi GBP 2. mars 2010 sem var 193,36.
Skeljungur býður jafnframt upp á vaxtalausan greiðslufrest til 31. ágúst 2010.
Áburðarverðskrá Skeljungs má nálgast með því að smella hér. ![]()
Bændur þurfa nú að leggjast vel yfir málin og bera saman verð og gæði auk þeirra greiðslukosta sem bjóðast.
Samanburð á áburðarverðskrám má nálgast með því að smella hér
Skeljungur birtir áburðarverð

Skeljungur hefur nú birt verð á þeim áburðartegundum sem fyrirtækið flytur inn og markaðssetur hér á landi undir nafninu Sprettur. Líkt og hjá öðrum áburðarsölum hækkar verðið gríðarlega á milli ára. Efnainnihald nokkurra áburðartegunda breytist milli ára en á þeim tegundum sem telja má að fullu sambærilegar við blöndur frá fyrirtækinu á liðnu ári er um að ræða 70%-114% hækkun á milli ára. Eingildi áburðurinn Sprettur 27% hækkar þó „aðeins“ um 44,6% á milli ára. Í þessum samanburði er litið til mestu afslátta hvort ár um sig.

Follow




