Niðurstöður tilboðsmarkaðar með greiðslumark mjólkur

Á vef Matvælastofnunar mast.is eru  opnun tilboða um kaup og sölu á greiðslumarki mjólkur,  þann 1. apríl 2015 skv. reglugerð nr. 190/2011 með síðari breytingum, hefur komið fram jafnvægisverð á markaði krónur 150 kr. fyrir hvern lítra mjólkur.

Alls bárust Matvælastofnun 17 tilboð um kaup eða sölu á greiðslumarki.

Fjöldi gildra tilboða um sölu = 8
Fjöldi gildra tilboða um kaup = 9
Greiðslumark sem boðið var fram = 342.933 lítrar.
Greiðslumark sem óskað var eftir = 610.000 lítrar.
Greiðslumark sem viðskipti ná til eftir opnun tilboða = 167.933 lítrar.
Kauphlutfall viðskipta er 98,78 %

Á meðfylgjandi mynd má sjá niðurstöðu tilboðsmarkaðar þann 1. apríl 2015. Á myndinni er sýnd blá lína framboðs og rauð lína eftirspurnar. Jafnvægisverð sem fram kom á markaðinum reyndist krónur 150 kr/l.

Myndræn framsetning sýnir uppsafnað kaup- og sölumagn við ákveðið verð. Skurðpunktur  línann reynist því aðeins vera niðurstaða á uppboðinu ef ofangreint hlutfall kaup og sölumagns reynist vera jafnt og 1. Sé hlutfallið aftur á móti undir einum þá er skurðpunktur línanna ekki birtingarmynd á jafnvægisverði  né jafnvægismagni.

Þeir sem lögðu inn tilboð um sölu á greiðslumarki á verði sem væri 150,- kr./l. eða lægra selja nú greiðslumark sitt.

Samanburður við fyrri markað sem haldinn var þann 1. nóvember 2014 sýnir eftirfarandi:

að framboð er nú 180,6 % miðað við það sem boðið var til sölu á síðasta markaði
að eftirspurn eftir greiðslumarki er nú 542,7 % miðað við það sem óskað var eftir á síðasta markaði
að verð á greiðslumarki nú er 10 krónum hærra en það var á markaði þann 1. nóvember 2014.

back to top