Kynbótasýning á Sörlastöðum

Senn líður að fyrstu kynbótasýningu vorsins hér sunnanlands á vegum Búnaðarsambands Suðurlands en hún verður haldin á Sörlastöðum í Hafnarfirði dagana 30. apríl til 11. maí. Þar sem ómögulegt er að vita hve mikil þátttaka verður getur verið að dögum verði fækkað og sýningin mun þá frestast um einhverja daga. Hugsanlega verða hrossin ekki fleiri en svo að seinni vikan dugi en það verður allt auglýst um leið og það er ljóst. Tekið verður við skráningum dagana 23. til 25. apríl á skrifstofu Búnaðarsambandsins í síma 480-1800 eða á heimasíðunni www.bssl.is. Á sömu heimasíðu verður röðun hrossa birt þegar þegar búið er að raða niður á dagana.

Sýningargjald á hvert hross er 18.500 kr. Ef hross er einvörðungu skráð í byggingardóm eða hæfileikadóm er sýningargjaldið 13.500 kr. Það er nauðsynlegt er að geta þess um leið og hrossið er skráð að það eigi einungis að mæta í byggingardóm eða hæfileikadóm, ef það er ekki gert er litið svo á að það eigi að fara í fullnaðardóm. Hafi greiðsla ekki borist í síðasta lagi í lok síðasta skráningardags er viðkomandi hross ekki skráð í mót. Sýningargjöld er hægt að greiða á skrifstofu Búnaðarsambandsins að Austurvegi 1 á Selfossi eða inn á reikning  nr. 0152-26-1618, kt: 490169-6609. Ef greitt er í banka er mikilvægt að biðja bankann um að faxa strax greiðslukvittun til Búnaðarsambandsins, faxnúmerið er 480-1818. Mjög brýnt er að merkja greiðslu með númeri og nafni hrossins. Ef greitt er í gegnum netbanka vinsamlegast sendið greiðslukvittun á netfangið helga@bssl.is. Hægt er að greiða sýningargjöld með kreditkorti. Endurgreiðsla á sýningargjöldum kemur aðeins til greina ef látið er vita um forföll fyrir kl. 16:00 síðasta virka dag fyrir sýningu. Þannig ef sýning hefst á mánudegi þarf að vera búið að afskrá hrossið á föstudegi fyrir lokun skrifstofu. Ekki er um fulla endurgreiðslu að ræða heldur einungis 11.000 kr. fyrir hross sem hefur verið skráð í fullnaðardóm en 8.000 kr. fyrir þau hross sem hafa einungis verið skráð í byggingar- eða hæfileikadóm. Slasist hross eftir að sýning hefst er hægt að framvísa læknisvottorði til að fá endurgreiddan hluta af sýningargjaldi.

Rétt er að minna á eftirfarandi:
1. Öll hross sem koma til kynbótadóms skulu vera grunnskráð í WorldFeng og einstaklingsmerkt.

2. Allir stóðhestar sem koma til dóms skulu vera DNA-greindir svo og foreldrar þeirra, s.s. þess er krafist að allir stóðhestar hafi sannað ætterni.

3. Allir stóðhestar 5 vetra og eldri sem koma til dóms þurfa að skila inn vottorði  um að úr þeim hafi verið tekið blóðsýni. Ekki þarf að framvísa vottorði fyrir hesta sem þegar liggur fyrir í WF að búið er að taka blóð úr.

4. Röntgenmynda skal hækla stóðhesta. Röntgenmyndirnar er heimilt að taka af hestinum á því ári sem þeir verða fimm vetra. Hestur hlýtur ekki dóm nema myndataka hafi farið fram og niðurstöður liggi fyrir í WorldFeng.

5. Hófar mega ekki vera lengri en 9,0 cm. Undantekningar frá þessari reglu má gera þegar hæð á herðar mælist 137-144 cm, mælt með stangarmáli, en þá má hóflengd vera allt að 9,5 cm og ef hæðin er 145 cm eða meira má hóflengdin vera allt að 10,0 cm. Ekki má muna meira en  2 cm á lengd fram- og afturhófa.

6. Hámarksþykkt skeifna er 8 mm og hámarksbreidd 23 mm. Sama breidd skal vera á fram- og afturfótaskeifum en mest má muna 2 mm í þykkt. Skeifurnar skulu vera samstæðar og úr samskonar efni.

7. Hafi hross verið fulldæmt á almanaksárinu getur eigandi valið að láta nýjasta byggingardóm úr fullum dómi standa við endursýningu. Ekki er hægt að koma með hross í byggingardóm og ætla síðan að koma á næstu sýningu með hrossið í reiðdóm.


Aðrar sýningar í umsjón Búnaðarsambands Suðurlands eru:
Brávellir á Selfossi dagana 14. til 25. maí
Tekið við skráningum í síma 480-1800 dagana 2. til 4. maí

Héraðssýning Gaddstaðaflötum dagana 29. maí  til 8. júní
Tekið við skráningum í síma 480-1800 dagana 15. til 18. maí

Það skal skýrt tekið fram að þetta er sýningaráætlun, þannig að vel getur verið að það þurfi að fækka eða fjölga dögum þegar ljóst er hversu mörg hross eru skráð til sýningar hverju sinni. Reynt verður að dæma ekki um helgar eða á öðrum helgidögum en þó er vel hugsanlegt að yfirlitssýningar færist yfir á helgarnar ef þátttaka er mjög mikil. Það er um að gera að skrá tímalega til að vera öruggur með að fá tíma á þá sýningu sem sóst er eftir að komast á. Hægt verður að skrá hross til sýningar á heimasíðu Búnaðarsambandsins, www.bssl.is þá daga sem verið er að taka niður skráningar og til miðnættis á síðasta skráningardegi svo framarlega sem sýningin er ekki fullbókuð. Lokað er fyrir skráningu um leið og sýning er fullbókuð þó svo skráningafrestur sé ekki útrunninn.

Rétt er að taka fram að að hestar með eistnagalla sem jafngilda rauðu T (í WF) eða eru með rautt S í WF (spatt) eru ekki verðlaunaðir á kynbótasýningum né heldur hljóta þeir þátttökurétt í einstaklingssýningum kynbótahrossa á landsmótum. Reglur um kynbótasýningar má sjá í heild sinni á slóðinni www.bssl.is.

Halla Eygló Sveinsdóttir


Kynbótasýning á Sörlastöðum

Skráningar hófust í dag, 6. maí  á kynbótasýninguna á Sörlastöðum sem verður dagana 18. – 29. maí. Tekið verður við skráningum í síma 480-1800, einnig er hægt að skrá á hross til sýningar hér á heimasíðunni með því að smella hér. Síðasti skráningardagur er 8. maí.
Við minnum á að hægt er að láta síðasta byggingardóm innan 60 daga gilda við næstu sýningu grips á vorsýningum. Aðeins er hér um að ræða val um byggingardóm úr síðasta fullnaðardómi hestsins og reglan gildir ekki milli vor- og haustsýninga. Hrossið þarf eftir sem áður að mæta til mælingar á hófum og standast járningareglur. Tilkynna þarf við skráningu á sýningu ef þessi leið er valin.
(meira…)


back to top