Ný ríkisstjórn er tekin við






Mynd: Árni Sæberg /mbl.is
Annað ráðuneyti Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra, tók við völdum á ríkisráðsfundi á Bessastöðum nú undir kvöld. Samfylkingin og Vinstrihreyfingin-grænt framboð mynda ríkisstjórnina sem í sitja tólf ráðherrar.
Fjórir ráðherrar eru nýir: Árni Páll Árnason, sem tekur við embætti félags- og tryggingamálaráðherra, Jón Bjarnason, sem verður landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra, Katrín Júlíusdóttir, sem verður iðnaðarráðherra og Svandís Svavarsdóttir, sem verður umhverfisráðherra.

Tveir ráðherrar létu af embættum í dag, þær Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, sem var félagsmálaráðherra en verður nú forseti Alþingis, og Kolbrún Halldórsdóttir, sem var umhverfisráðherra en náði ekki kjöri á þing.


Þau Gylfi Magnússon og Ragna Árnadóttir, sem sátu í síðustu ríkisstjórn en eiga ekki sæti á Alþingi, munu gegna ráðherraembættum áfram í nýju stjórninni, Gylfi verður efnahagsmálaráðherra og Ragna verður dómsmálaráðherra.


Þeir ráðherrar, sem sitja áfram eru auk Jóhönnu þau Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, Katrín Jakobsdóttir, menntamálaráðherra, Ögmundur Jónasson, heilbrigðisráðherra og Kristján L. Möller, samgönguráðherra.


Ríkisstjórnin mun standa vörð um innlendan landbúnað og tryggja fæðu- og matvælaöryggi þjóðarinnar og standa vörð um störf í matvælaiðnaði. Íslenskur landbúnaður verði efldur með áherslu á fullvinnslu afurða og markaðssókn innanlands sem utan. Stuðningskerfi landbúnaðarins verði endurskoðað með áherslu á að auðvelda nýliðun. Svigrúm bænda til heimaframleiðslu, vöruþróunar og heimasölu með upprunamerkingum verði aukið og nýtt til sóknar í ferðaþjónustu. Átak verði gert í lífrænni ræktun og bændum tryggður aðlögunarstuðningur skipti þeir úr hefðbundinni ræktun yfir í lífræna.


back to top