Frá uppskeruhátíð hrossaræktarfélaganna í Flóahreppi

Laugardaginn 14.janúar s.l. var haldin sameiginleg uppskeruhátíð hrossaræktarfélaganna í Flóahreppi en þar eru starfandi þrjú hrossaræktarfélög, í fyrrum Villingaholts-, Gaulverjabæjar- og Hraungerðishreppum.
Anton Páll Níelsson hélt mjög fróðlegt erindi þar sem farið var vítt og breytt yfir ýmsa þætti hrossaræktar og reiðmennsku.
Hvert hrossaræktarfélag veitti svo verðlaun fyrir sitt félag og að síðustu voru veitt verðlaun fyrir efstu hross í öllum félögunum.

Efstu hrossin voru sem hér segir:

Efstu kynbótahross í Villingaholtshreppi
Reglan í Hrossaræktardeild Villingaholtshrepps er sú að efstu þrjú kynbótahross fá verðlaun.


1. IS2006225710 – Embla frá Valhöll
Hæsti dómur 8,23


2. IS2006287494 – Trú frá Syðri-Gróf 1
Hæsti dómur 8,22


3. IS2006287571 – Lukkudís frá Austurási
Hæsti dómur 8,10


Efsta kynbótahross í Hraungerðishreppi 2011
Reglan í hrossaræktardeild Hraungerðishrepps er sú að hæst dæmda kynbótahross svæðisins hlýtur verðlaun, en sama hrossið getur einungis unnið bikarinn einu sinni. Að þessu sinni var Frakkur frá Langholti efstur en hann hlaut bikarinn í fyrra og því er það Steggur frá Halakoti sem hlýtur bikarinn.


IS2003182462 Steggur frá Halakoti


Efstu kynbótahross í Gaulverjabæjarhreppi 2011
Reglan í Hrossaræktardeild Gaulverjabæjarhrepps er sú að hæst dæmdi stóðhestur og hæst dæmda hryssa svæðisins fá verðlaun.


IS2004187660 Gandálfur frá Selfossi
Hæsti dómur 8,46


IS2005287262 – Hafdís frá Hólum
Hæsti dómur 8,36


Hæst dæmdu kynbótahross í Flóahrepp 2011
Reglan er sú að hæst dæmdi stóðhestur og hæst dæmda hryssa svæðisins fá verðlaun, en einungis getur sama hrossið unnið bikarinn einu sinni.


IS2004187401 – Frakkur frá Langholti
Hæsti dómur 8,68


IS2005287262 – Hafdís frá Hólum
Hæsti dómur 8,36


Myndin er af Viðju Hreggviðsdóttur að taka við verðlaunum fyrir stóðhestinn Frakk frá Langholti.


back to top