Engan bilug að finna á Blíðu 1151

Niðurstöður afurðaskýrslnanna í nautgriparæktinni við lok september 2012, hafa verið reiknaðar og birtar á nautgriparæktarsíðum bondi.is. Þegar yfirlitið var búið til höfðu borist skýrslur frá 93% þeirra 594 búa sem skráð eru í skýrsluhaldið.
Helstu niðurstöðurnar eru þær að 21.614,2 árskýr mjólkuðu að meðaltali 5.618 kg sl. 12 mánuði, sem er nánast sama niðurstaða og í síðasta uppgjöri, aðeins 15 kg lægri. Hæsta meðalnytin við lok september var í Miðdal í Kjós 7.815 kg eftir árskú. Næst á eftir kom búið á Hraunhálsi í Helgafellssveit á Snæfellsnesi en þar var nytin 7.766 kg og þriðja búið á listanum var að þessu sinni búið á Hóli í Sæmundarhllíð en þar voru meðalafurðirnar 7.762 kg eftir árskú.

Á 19 búum fór meðalnytin yfir 7.000 kg eftir árskú.


Nythæsta kýrin á síðustu 12 mánuðum er hin sama og allt þetta ár, Blíða 1151 í Flatey á Mýrum, A-Skaft., nyt hennar síðastliðna 12 mánuði var 13.385 kg. Það er með ólíkindum hvað hún heldur hárri nyt í langan tíma. Önnur kýrin í röðinni yfir nythæstu kýrnar síðastliðna 12 mánuði er Blúnda 335 í Leirulækjarseli í Borgarbyggð, en hún mjólkaði 13.285 kg. Hin þriðja á þessum lista í septemberlok er Vitra 622 Í Reykjahlíð á Skeiðum. Hún mjólkaði 13.046 kg sl. 12 mánuði. Alls náðu 10 skýrslufærðar kýr að fara yfir 11.000 kg á síðustu 12 mánuðum og þrjár þeirra yfir 13.000 eins og fram hefur komið.


Sjá nánar:
Niðurstöður skýrsluhalds nautgriparæktarinnar


back to top