Draumur kominn yfir 400 kg

Aberdeen Angus kálfarnir í einangrunarstöðinni á Stóra Ármóti þroskast vel. Í dag 4. apríl fór  nautkálfurinn Draumur  í 402 kg þyngd en hann verður 7 mánaða um miðjan mánuðinn. Hann hefur þyngst um 1760 gr á dag frá fæðingu.  Næstur í þunga er Vísir með 383 kg og þyngsta kvígan er Birna sem er 323 kg.  Myndin er af Draumi 4. apríl


back to top