Aðalfundur LK hefst í dag.

Aðalfundur Landsambands kúabænda hefst á Egilsstöðum í dag kl.10:00.  Á
 fundinum í dag mun Baldur Helgi Benjamínsson framkvæmdastjóri LK kynna viðhorfskönnun LK 2013, Sigurborg Daðadóttir mun vera með erindi um dýravelferð og eftirlit.  Snorri Sigurðsson ráðgjafi við Þekkingarsetur lanbúnaðarins í Danmörku mun kynna leiðbeiningar um góða búskaparhætti.  Að auki verða hefðbundin aðalfundarstörf og ávörp gesta, en fundinn má sjá í beinni útsendingu á vef LK naut.is.

Dagskrá fundarins

Föstudagur, 22. mars 2013

Kl. 10:00         Fundarsetning, kosning starfsmanna fundarins og kjörbréfa- og uppstillingarnefndar
Kl. 10:10         Skýrsla stjórnar – Sigurður Loftsson, formaður LK
Kl. 10:40         Ávörp gesta/umræður um skýrslu stjórnar
Kl. 11.15         Niðurstöður viðhorfskönnunar LK 2013. Baldur Helgi Benjamínsson, framkvæmdastjóri LK.
Kl. 13:00         Dýravelferð og eftirlit – Sigurborg Daðadóttir, yfirdýralæknir.
Kl. 13.30         Leiðbeiningar um góða búskaparhætti. Snorri Sigurðsson, ráðgjafi við Þekkingarsetur landbúnaðarins í Danmörku.
Kl. 14.00         Niðurstöður kjörbréfanefndar lagðar fram
Kl. 14.10         Almennar umræður
Kl. 16:00         Skipan í nefndir, málum skipað til nefnda og nefndastörf
Kl. 18:00    Fundi frestað
 
Laugardagur, 23. mars 2013
Kl. 8:00           Nefndastörf
Kl. 13:00         Afgreiðsla mála
Kl. 16:00         Kosningar
Kl. 16:30         Önnur mál
Kl. 17:00         Áætluð fundarlok

back to top