Skráningarfrestur framlengdur á kynbótasýningu í Hafnarfirði

Kynbótasýning fer fram á Sörlastöðum í Hafnarfirði dagana 21. til 24. maí. Skráning og greiðsla sýningargjalda fer fram í gegnum netið á síðunni www.worldfengur.com þar sem valið er „Skrá hross á kynbótasýningu“. Einnig er hægt að skrá hross til sýningar hér á heimasíðu RML í gegnum flýtihnapp á forsíðunni.
 
Síðasti skráningar- og greiðsludagur er nk. sunnudag 12. maí. Verð fyrir fullnaðardóm er 18.500,- kr. en fyrir sköpulagsdóm eða hæfileikadóm 13.500,- kr. Endurgreiðslur á sýningargjöldum koma því aðeins til greina ef forföll eru tilkynnt fyrir kl. 16:00 síðasta virka dag fyrir sýningu í síma 516-5000 en einnig er hægt að senda tölvupóst á netföngin lr@rml.is og rml@rml.is.
 
 

Endurgreiddar eru kr. 11.000,- fyrir hross sem skráð hefur verið í fullnaðardóm og kr. 8.000,- fyrir hross sem aðeins hefur verið skráð í sköpulags- eða hæfileikadóm. Slasist hross eftir að sýning hefst er sama hlutfall endurgreitt gegn framvísun læknisvottorðs.
 
Allar nánari upplýsingar í síma Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins 516-5000 eða á hér á heimasíðunni undir liðnum „Búfjárrækt/hrossarækt/kynbótasýningar“ þar sem t.d. eru leiðbeiningar um hvernig eigi að skrá hross á sýningu. Einnig er hægt að senda fyrirspurnir á netföngin lr@rml.is og rml@rml.is.
 
Minnum á að allir stóðhestar verða að vera DNA-greindir svo og foreldrar þeirra. Stóðhestar fimm vetra og eldri þurfa að hafa fyrirliggjandi í WorldFeng blóðsýni og röntgenmynd af hæklum. Ef þessar upplýsingar vantar er ekki hægt að skrá þá á sýningu.

back to top