Sauðfjársæðingarvertíðin hafin

Sauðfjársæðingarvertíðin hófst þann 1. desember og á meðfylgjandi mynd má sjá Svein Sigurmundsson afhenda Jóni Vilmundarsyni fyrsta sæðisskammtinn sem afgreiddur er á þessari vertíð. Jón pantaði sæði úr hrútunum frá Ytri- Skógum þeim Saumi og Grími. Því miður gengur ekki alveg nógu vel með alla hrútana og ekki náðist sæði þennan fyrsta dag úr þeim Bósa frá Þóroddstöðum og Burkna frá Mýrum. Þá voru sæðisgæði úr Ofsa frá Ásgarði ekki ásættanleg.


back to top