Niðurstöður skýrsluhaldsins 2012

Nú er búið að birta á vef Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins rml.is uppgjör á skýrslum fjárræktarfélaganna fyrir árið 2012. Afurðir á landsvísu hafa aldrei verið meiri í sögu skýrsluhaldsins sem spannar nú orðið nokkra áratugi. Afurðir eftir allar fullorðnar ær voru 27,3 kg, voru 26,5 kg árið 2011, fara þarf aftur til ársins 2000 til að finna sambærilegar afurðir. 

Á þeim tíma var þátttaka í skýrsluhaldi líka helmingi minni en hún er í dag. Árangurinn árið 2012 er því glæsilegur í því ljósi, og ekki síst vegna þess hversu öfgakennt tíðarfarið var á árinu. Víða voru miklir sumarþurrkar og snemma í september kom mikið hret á norðanverðu landinu sem hafði án efa talsverð áhrif til minni afurða en ella hefðu orðið. Nánar verður greint frá helstu niðurstöðum í Bændablaðinu innan tíðar. eib/
 
Hægt er að fá frekari upplýsingar á niðurstöður skýrsluhalds 2012

back to top