Verð á minkaskinnum aldrei betra en nú

Sala á íslenskum minkaskinnum hefur gengið vel á yfirstandandi uppboði hjá Kopenhagen Fur í Danmörku. Íslensk skinn hafa aldrei selst á betra verði en nú og hafa farið í allt að 540 dönskum krónum stykkið. Það eru rúmar 11 þús. ISK. Allt stefnir í að útflutningsverðmæti minkaskinna frá Íslandi verði rúmur milljarður á þessu ári en meðalverðið verður líklega á bilinu 310-320 DKK.
„Minkaskinn eru flokkuð og seld eftir gæðum og stærð. Miklar framfarir hafa orðið í framleiðslunni hér en Ísland er nú í 3. sæti yfir lönd sem framleiða verðmætustu skinnin. Danir trjóna á toppnum og þeim næst koma Norðmenn en alls eru minkaskinn framleidd í á fjórða tug landa“, að sögn Einars E. Einarssonar loðdýraræktarráðunautar hjá BÍ. Einar segir að um 500 kaupendur séu á uppboðinu þar af um helmingur frá Asíu.

Uppboðið hófst á föstudaginn en um 4,7 milljónir minkaskinna eru þar til sölu auk annars konar skinna. Aðeins fjögur í uppboðshús í heiminum selja minkaskinn. Fyrir utan þetta í Danmörku eru uppboðshús í Finnlandi, Kanada og í Bandaríkjunum. Einar segir að allir íslenskir loðdýrabændur selji sína framleiðslu hjá Kopenhagen Fur í Danmörku, það hafi einfaldlega reynst best en þeim sé að sjálfsögðu heimilt að stunda viðskipti í hinum uppboðshúsunum.


Á Íslandi starfa 22 loðdýrabú sem framleiða minkaskinn. Einar segir að flest búin séu í kringum Selfoss og í Skagafirði. Einar segir að Ísland henti vel til loðdýraræktar, hér sé nægt hráefni og ræktunin hagkvæm.


back to top