Sumarið 2008 með sólríkari sumrum

Veðrátta í ágúst var hagstæð um land allt, nokkuð hvasst var þó þann 29. að því er fram kemur í yfirliti á vef Veðurstofu Íslands.
Meðalhiti í Reykjavík var 11,5 stig og er það 1,2 stigum ofan meðallags og er níundi hlýjasti ágústmánuður frá upphafi mælinga. Talsvert hlýrra var í ágúst 2003 og 2004. Á Akureyri var meðalhitinn einnig 11,5 stig og er það 1,5 stigum ofan meðallags. Á Höfn í Hornafirði var meðalhitinn 10,9 stig, 0,7 stigum ofan meðallags og 7,7 stig á Hveravöllum og er það 1,5 stigum ofan meðallags.

Meðalhiti á fáeinum öðrum stöðvum var sem hér segir: Stykkishólmur 11,1 stig, Bolungarvík 10,6 stig, Egilsstaðir 10,6 stig, Dalatangi 9,5 stig og Stórhöfði 10,8 stig.


Úrkoman í Reykjavík mældist 82 mm og er það 32% umfram meðallag. Á Akureyri mældist úrkoman aðeins 14 mm og er það um 40% meðalúrkomu. Ekki hefur verið jafn þurrt í ágúst á Akureyri frá 1986, álíka þurrt var þó í ágúst 1991. Á Höfn í Hornafirði mældist úrkoman 99 mm sem er í tæpu meðallagi. Mjög þurrt var á Höfn fram yfir miðjan mánuð.


Sólskinsstundir í Reykjavík mældust 162 og er það í rétt rúmu meðallagi. Á Akureyri mældust sólskinsstundirnar 163 og er það 27 stundum fleiri en í meðalári. Fleiri sólskinsstundir mældust á Akureyri í ágúst 2004.


Hæstur hiti í mánuðinum mældist á Þyrli við Hvalfjörð þann 1., 24,3 stig, en lægsti hitinn mældist -3,2 stig á Brú á Jökuldal þann 10. Á mannaðri stöð var hitinn lægstur á Torfum í Eyjafirði þann 12., -0,5 stig, og hæstur hinn 1. á sama stað, 23,8 stig.


Sumarið það sem af er
Sumarið það sem af er hefur verið mjög hagstætt. Meðalhiti mánaðanna júní til ágúst er 11,5 stig. Það dugar til að þessi hluti sumarsins teljist sá 4. til 5. hlýjasti frá upphafi mælinga í Reykjavík. Hlýrri eru 2003, 1880 og 1939 og jafnhlýtt var 2004 eins og nú. Munur á hita nú og sumurin 1933, 1934 og 1941 er svo lítill að hann er ekki marktækur. Óvissa skapast af flutningi stöðvarinnar um bæinn frá þessum tíma. Allmörg sumur hafa verið hlýrri á Akureyri.


Sérlega sólríkt var í júní og sólskinsstundir í júlí og ágúst í ríflegu meðallagi. Sumarið er fram til þessa það sólríkasta í Reykjavík frá 1929 (673 stundir nú), en ámóta sólríkt var þó 1931, 1939 og 1952. Sólríkara var 1927, 1928 (768 stundir) og 1929. Á Akureyri er sumarið einnig hið fjórða sólríkasta (580 stundir). Talsvert fleiri sólskinsstundir mældust á Akureyri á þessum tíma 1971 (630) og árin 2000 og 2004 voru einnig fleiri sólskinsstundir á Akureyri en nú.


Tímabilið maí til ágúst
Sumarið byrjaði óvenjusnemma í ár með mjög hlýjum maímánuði. Meðalhitinn í Reykjavík á þessu tímabili er 10,8 stig. Þetta er jafnhátt og á sama tíma sumarið 1939, lítillega kaldara var 2003 og munur á sama tímabili 1933 og 1941 er ekki marktækur.


Á Stórhöfða í Vestmannaeyjum var sjónarmun hlýrra í maí til ágúst 1939 og jafnhlýtt 1933 og nú. Í Stykkishólmi var 0,1 stigi hlýrra 1933 og 1939 heldur en nú. Í Bolungarvík er tímabilið það áttunda hlýjasta á síðustu 100 árum, hlýrra varð síðast 2003 og 2004. Maí til ágúst varð hlýjast í Bolungarvík 1933.


Á Akureyri eru maí til ágúst í 6. til 7. sæti hvað hlýindi varðar (10,25 stig). Mælt hefur verið frá 1882. Hlýrra var 1933 (11,58 stig), 1939 (10,81 stig), 1947, 1984 og 1889 og jafnhlýtt og nú var 1991. Inn til landsins á Austurlandi skera hlýindin sig ekki eins úr. Tímabilið maí til ágúst nú er þannig í 10. sæti á Egilsstöðum frá 1950 að telja og í því 15. frá 1937 á Hallormsstað. Á Dalatanga er það hins vegar í 6. sæti frá 1938. Nokkru hlýrra var þar 1939, 1947 og 1984. Á Hveravöllum var hlýrra 2003 og 2004 en nú.


 


back to top