Reykjahlíð gefur hvergi eftir

Uppgjör mars-mánaðar í skýrsluhaldi nautgriparæktarinnar hefur verið birt á vef Bændasamtakanna. Afurðir eftir árskú halda áfram að lækka og eru nú 5.082 kg/árskú. Hér á Suðurlandi hafa afurðir aftur á móti aukist lítillega frá því í febrúar og reiknast nú 5.403 kg/árskú.
Skýrsluskil eru mjög góð eða 96% á landinu öllu. Hér á Suðurlandi eru skýrsluskil best í A-Skaft. eða 100%. Síðan koma Árnessýsla og V-Skaft. með 97% og Rangárvallasýsla með 89%. Í Rangárvallasýslu eru lökustu skýrsluskil á landinu sem hlýtur að teljast miður.
Afurðir eru sem fyrr mestar í Skagafirði en Snæfellingar koma þar mjög skammt á eftir. Hér á Suðurlandi eru afurðir nú mestar í Árnessýslu.

Reykjahlíð trónir enn á toppnum á lista yfir afurðahæstu búin með 7.823 kg/árskú en Daníel í Akbraut er í fjórða sæti á landsvísu með 7.577 kg/árskú og Kirkjulækur í því sjötta með 7.447 kg /árskú. Alls eru 6 bú á Suðurlandi með afurðir yfir 7.000 kg/árskú og til tíðinda hlýtur að teljast að í fyrsta skipti er bú í V-Skaft. nú á þeim lista en það er Hraunkot með 7.201 kg/árskú.


Örk 166 Almarsdóttir 900149 í Egg í Hegranesi er sem fyrr afurðahæsta kýrin með 12.686 kg. Efsta sunnlenska kýrin er í þriðja sæti á landsvísu. Þetta er Hespa 382 Óttadóttir 99029 á Reykhóli á Skeiðum en hún stendur nú í 11.626 kg.
Nánari upplýsingar er að finna á vef BÍ.


Niðurstöður skýrsluhaldsins


 


back to top