Opinberar tölur um fjölda búfjár og fóðurframleiðslu árið 2012

Matvælastofnun var að birta á vef sínum mast.is opinberar tölur um fjölda búfjár og fóðurframleiðslu í landbúnaði fyrir árið 2012.
Á vefnum má nú finna á rafrænan hátt gögn sem spanna tímabilið 1981-2012.  Þessar tölur byggja á skráningu búfjáreftirlitsmanna að vori og bænda að hausti.  Tölur um fóðurframleiðslu byggja á skráningum bænda en tölur um fjölda búfjár á skráningu búfjáreftirlitsmanna.
 

Á vef MAST er Mælaborð sem má nýta til að greina fjöldatölur einstakra búfjártegunda og þróun landbúnaðar eftir svæðum eða sveitarfélögum á því árabili sem gögnin ná yfir.
 
Heimilt er að nýta þau gögn sem fengin eru af mælaborðinu en vakin er athygli á að geta skal heimildarinnar „Matvælastofnun“


back to top