Ný bók um ostagerð

Við viljum vekja athygli á nýlega útkominni bók sem heitir Heimavinnsla mjólkurafurða – Ostagerð. Bókin byggir á efni sem tekið var saman vegna námskeiða sem Endurmenntun Landbúnaðarháskóla Íslands hélt á fyrri hluta ársins 2009. Þórarinn Egill Sveinsson mjólkurverkfræðingur fór þá víða um land og kenndi fólki undirstöðuatriði í ostagerð í heimahúsum. Fljótt kom í ljós mikill áhugi á ostagerð og var þess farið á leit við Þórarin Egil að hann setti saman bók um efnið. Starfsmenntaráð styrkti útgáfuna.

Megináherslan er lögð á ostagerð úr kúamjólk og mjólk sem hráefni. Gefnar eru upp nokkrar grunnuppskriftir, s.s. af skyri, jógúrti, kotasælu, fetaosti, mascarpone, mysuosti og ýmsum hleypiostum eins og parmesan og camembert. Þórarinn Egill segir í formálsorðum mikilvægt að fólk sé óhrætt við að prófa sig áfram og búa til eigin uppskriftir. Til þess þarf sjaldan annan búnað en til er á venjulegu heimili. “Heimavinnsla mjólkur er skemmtileg hlið matargerðar,” segir höfundurinn. “Raunar er allt leyfilegt og um að gera að prófa sem flestar samsetningar og aðferðir.”


Bókin Ostagerð er 76 blaðsíður. Þeir sem vilja eignast þessa bók geta haft samband við Ásdísi Helgu Bjarnadóttur hjá Landbúnaðarháskóla Íslands. Netfangið er asdish@lbhi.is  en síminn 843 5302/433 5000. Bókin kostar kr. 2.500. Athugið að sendingarkostnaður er kr. 250 sem bætist við verð bókarinnar.


back to top