Heimasvæði notenda í WorldFeng

Búið er að opna fyrir aðgang notenda Worldfengs að eigin heimasvæði sem kallað er Heimarétt. Í Heimaréttinni eiga að koma fram öll hross í eigu viðkomandi áskrifanda. Fjórar upplýsingasíður koma upp sem eru; hrossin mín, fargað, selt og útflutt. Allir eigendur sem eru áskrifendur að WorldFeng geta nú sjálfir skráð eigandaskipti, afdrif og bætt inn athugsemdum um sín hross með því að hafa aðgang að Heimaréttinni.

Athugsemdir sem eru skráðar á hrossin eru sýnileg öllum notendum. Eigendaskipti er aðeins hægt að hafa ef viðkomandi er skráður 100% eigandi. Það er mjög mikilvægt að lána ekki notendaaðgang sinn. Með þessu er verið að stíga fyrstu skrefin í rafrænum skilum á skýrsluhaldsupplýsingum.

Áskrifendum er bent á að hafa samband við Jón Baldur hjá tölvudeild Bændasamtaka Íslands (netfang: jbl@bondi.is ) ef þeir vilja breyta um lykilorð til að tryggja aðgang sinn betur.


back to top