Haustfundir sauðfjárræktarinnar samantekt

Árlegum haustfundum Búnaðarsambandsins um sauðfjárrækt á Suðurlandi er nú nýlokið og tókust fundirnir mjög vel.  Sláturfélag Suðurlands og Búnaðarsamband Suðurlands buðu upp á kaffi á fundunum og Fóðurblandan og Jötunn Vélar gáfu þau verðlaun sem veitt voru. Þorsteinn Ólafsson var með erindi um frjósemi og hvað eigi að gera til að ná sem bestum árangri í sauðfjársæðingum. Sveinn Sigurmundsson fór yfir fyrirkomulag sauðfjársæðinga og niðurstöður síðasta árs, þ.e. þátttöku og árangur. Eyþór Einarsson frá RML kynnti hrútakost Sauðfjársæðingastöðvarinnar og fjallaði um fjárræktarstarfið. Fanney Ólöf Lárusdóttir hjá RML fór yfir hauststörfin á Suðurlandi og veitti verðlaun fyrir efstu lambhrútana og efstu BLUP hrútana.

Hér fyrir neðan er listi yfir bestu lambhrútana í hverri sýslu fyrir sig og listi yfir efstu BLUP hrútana,

Blup efstir 2018 BSSL

Verdlaunaveitingar lambhrúta 2018 fyrirkomulag

Rangárvallasýsla bestu lambhrútarnir 2018

Árnessýsla bestu lambhrútarnir 2018

Austur-Skaftafellsýsla bestu lambhrútarnir 2018

Vestur Skaftafellssýsla bestu lambhrútarnir 2018


back to top