Grunur um H1N1 inflúensu í svínum hérlendis

Grunur hefur vaknað um inflúensu í svínum á einu svínabúi hérlendis. Sýni sem voru tekin eru nú í rannsókn á Tilraunastöð HÍ að Keldum. Niðurstöðu er í fyrsta lagi að vænta í dag. Svínaflensa smitast ekki með svínakjöti og fólki stafar því engin hætta af neyslu þess. Til að koma í veg fyrir útbreiðslu smits til annarra búa hefur bann verið sett á flutning dýra frá búinu og allar sóttvarnir verið hertar.

Einkenni inflúensu í svínum eru m.a. hár hiti og lystarleysi, kvef og hósti. Svínin ná sér oftast eftir þriggja til sex daga veikindi.


Sú almenna regla gildir að óheimilt er að slátra veikum dýrum, þetta á jafnt við um svínaflensu sem aðra sjúkdóma. Ekki er ástæða til að banna slátrun einkennalausra svína þótt önnur svín á búinu séu veik. Svínaflensusmit berst ekki í fólk með neyslu svínakjöts.


back to top