Fleiri gestir en færri heimsóknir

Heimsóknum á vefsíðu Búnaðarsambandsins fækkaði á síðasta ári frá árinu 2011 en hins vegar fjölgaði þeim sem heimsóttu vefinn. Alls heimsóttu 20.539 vefinn á árinu 2012 samanborið 20.139 árið áður. Hins vegar fækkaði heimsóknum eins og áður sagði og námu þær alls 127.224 borið saman við 155.561 árið 2011. Síðuflettingum fækkaði einnig milli ára eða úr 355.858 á árinu 2011 í 300.005 á síðasta ári. Ástæðan fyrir þessari fækkun er ef til vill sú að fréttir á bssl.is birtast einnig á Facebook og Twitter-síðum Búnaðarsambandsins og svo geta menn einnig nálgast þær með appi í farsímann hjá sér.
Mestra vinsælda nutu fréttir og tilkynningar af kynbótasýningum hrossa en þegar þær standa yfir er vefurinn mikið notaður.
Hrútaskráin var eins og áður vinsæl með 3.959 flettingar en var með 4.335 flettingar á árinu 2011 og upplýsingasíða okkar um kynbótasýningar hrossa var skoðuð 2.842 sinnum (3.762 sinnum árið áður).
Af einstökum vefhlutum nýtur hrossaræktin mestra vinsælda með 5.950 flettingar, þá sauðfjárræktin með 5.120 flettingar og nautgriparæktin var með 4.007 flettingar.
Greinilegt er að notkun vefsins færist meira yfir í það form að menn leita í auknum mæli eftir faglegum upplýsingum en áður en minna eftir fréttum enda framboð frétta á vefnum gríðarlega mikið og samkeppni á þeim vettvangi sívaxandi.


back to top