Fjárhúsbygging á Stóra-Ármóti

Nú í vikunni hófst bygging á nýju Fjárhúsi á Stóra-Ármóti.  Byggingin á að vera 308 m2 og verður féð á hálmi, gert er ráð fyrir að húsið rúmi um 260 kindur.  Þar verður líka gott rými fyrir námskeiðahald er tengist sauðfjárrækt, svo sem rúningsnámskeið, sauðfjársæðinganámskeið, samræmingarnámskeið fyrir sauðfjárdóma ofl.  Öll vinnuaðstaða mun batna til muna auk þess sem allur aðbúnaður verður mun betri fyrir fólk og sauðfé.  

Fjárhúsbygging að rísa á Stóra-Ármóti

Fjárhúsbygging að rísa á Stóra-Ármóti

 


back to top