Eldgos á Fimmvörðuhálsi

Eldgos hófst á Fimmvörðuhálsi á tólfta tímanum á laugardagskvöldið, 20. mars. Þegar í stað var lýst yfir hættustigi og bæir á hættusvæði rýmdir vegna hugsanlegs flóðs ef gosið hefði undir jökli. Síðan þá hefur komið í ljós að ekki er hætta á flóði að svo stöddu en rýming er enn í gildi á eftirtöldum bæjum: Drangshlíðardalur, Núpakot, Þorvaldseyri, Seljavellir, Lambafell, Önundarhorn, Berjanes, Stóra Borg, Eyvindarhólar, Hrútafell, Rauðuskriður, Fljótsdalur, Brú og Leifsstaðir.
Annarri rýmingu er þar með aflétt. Enn er unnið á neyðarstigi. Rýmt verður að nýju ef forsendur breytast.

Almannavarnarnefnd fundaði með vísindamönnum og deildarstjóra Almannavarnardeildar Ríkislögreglustjóra í gær. Í framhaldi af því hafa verið teknar eftirfarandi ákvarðanir:
Gossvæðið er hættusvæði og er lokað allri umferð.


Takmarkanir á umferð:
Umferð hefur fram að þessu verið stöðvuð við Hellu og við Skóga. Henni verður nú hleypt á Suðurlandsveg en tilmæli til fólks að vera ekki á ferðinni að nauðsynjalausu. Eftirlitspóstar verða við Skóga og við Hvolsvöll. Umferð hefur gengið vel, hún er nú meiri til vesturs eftir Suðurlandsvegi. Lögregla er við eftirlit með hraða alla leið til Reykjavíkur.


Umhirða búfénaðar:
Yfirdýralæknir og Matvælastofnun mælast til þess við bændur að þeir fylgist vel með öskufalli vegna hættu sem búfénaði getur stafað af mengun sem því fylgir.


Vatnsveitur:
Þar sem bæir eru með einkavatnsveitur er nauðsynlegt að fylgjast með gæðum vatns. Tekin hafa verið sýni úr neysluvatnslind sem fæðir Vestmannaeyjabæ og reyndist það í lagi.


Upplýsingar um öskufall:
Veðurstofan óskar sérstaklega eftir upplýsingum um öskufall frá gosstöðvunum ef þess verður vart. Þetta er mikilvægt vegna ákvarðana varðandi flug innanlands og til og frá landinu.


Almannavarnarnefnd mun koma saman að kl. 09:00 og fara yfir stöðuna þá.

Upplýsingar um áhrif eldgosa á dýr má nálgast í eftirtöldum greinum:

Grein um áhrif eldgosa á dýr

Skýrsla um áhrif eldgosa á dýr

Vefur almannavarna


back to top