Dýralæknir til starfa hjá Nautastöðinni

Höskuldur Jensson dýralæknir hefur verið ráðin til starfa hjá Nautastöð BÍ og mun hann einnig sinna störfum fyrir Nautís

Meginverkefni Höskuldar verða gæðastýring á báðum stöðum, ráðgjöf við frjótækna og endurmenntun. Námskeiðahald fyrir bændur um frjósemi búfjár og innleiðing nýrra verkefna svo sem flutningur fósturvísa og undirbúningur fyrir kyngreiningu nautasæðis.

Höskuldur hefur þegar hafið störf.

Starfaðstaða hans verður bæði hjá NBÍ á Hesti og hjá BSSL á Selfossi.

Við bjóðum Höskuld velkominn til starfa og væntum mikils af störfum hans.


back to top