Búreksturinn á Hvanneyri aðskilinn frá annarri starfsemi

Landbúnaðarháskóli Íslands hefur um árabil staðið fyrir umfangsmiklum búrekstri á Hvanneyri og Hesti í Borgarfirði. Búreksturinn er grunnur fyrir mikilvæga þætti í kennslu og rannsóknum við stofnunina og hornsteinn íslenskra landbúnaðarvísinda. Áherslur hafa verið í búfjárrækt og jarðrækt en einnig á seinni árum í atferlis-, umhverfis- og orkuvísindum.
Nú hefur verið ákveðið að breyta búrekstrinum og aðskilja hann alfarið frá annarri starfsemi við LbhÍ. Stofnað hefur verið sérstakt félag, Grímshagi ehf., um rekstur búsins frá og með næstu áramótum. Telur LbhÍ að með þessu verði markmiðum skólans og íslensks landbúnaðar best borgið eins og á stendur.

Meginmarkmið er áfram að reka kennslu- og rannsóknarbú í hæsta gæðaflokki fyrir starfsemi háskólans til afnota fyrir vísindasamfélagið. Skapa með því aðstöðu fyrir nemendur og starfsmenn LbhÍ og samstarfsmenn skólans, bæði utan lands og innan, til fræðslu og rannsókna sem tengjast landbúnaði, auðlindum og umhverfismálum í víðum skilningi.


Stjórnarformaður Grímshaga ehf. er Haraldur Benediktsson, formaður Bændasamtaka Íslands og bóndi á Vestri-Reyni. Lárus Pétursson á Hvanneyri hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri.


back to top