Breytingar á sauðfjársamningi samþykktar af sauðfjárbændum

Tilkynnt hefur verið um niðurstöður í almennri kosningu meðal sauðfjárbænda um breytingar á samningi um starfsskilyrði sauðfjárræktarinnar. Á kjörskrá voru 2.755, greidd atkvæði voru 891 og var þátttaka í atkvæðagreiðslunni því 32,3%. Atkvæði féllu þannig: Já sögðu 812, eða 91,1%. Nei sögðu 60, eða 6,7%. Auðir seðlar voru 19, eða 2,1%.
Breytingarnar á sauðfjársamningnum, sem undirritaðar voru 28. september sl. voru því samþykktar með yfirgnæfandi meirihluta atkvæða. Í framhaldi af þessari atkvæðagreiðslu verða breytingarnar teknar til afgreiðslu á Alþingi.


back to top