Bændafundur SS

Sláturfélag Suðurlands býður til bændafunda í samvinnu við DLG og YARA þar sem í boði eru fræðsluerindi um fóðrun og áburð, auk þess munu hinir frábæru skemmtikraftar „Hundur í óskilum“ fara með gamanmál og stýra fundum.
Fundirnir verða haldnir frá kl. 20:30 – 23:00 Félagsheimilinu Hvoli, Hvolsvelli Fimmtudaginn 17. nóvember 2016
Léttar veitingar og góðgæti verða í umsjá kvenfélagskvenna viðkomandi svæða. Fyrirlestrarnir verða þýddir eins og þurfa þykir auk
þess sem glærur verða á íslensku.

DAGSKRÁ
• Steinþór Skúlason, forstjóri SS.
Setur fundinn og ávarpar gesti.
• Jakob Kvistgaard, fóðurfræðingur og vörustjóri
hjá DLG.
Hvað gerir kvígu að góðri mjólkurkú?
• Ole Stampe, viðskiptastjóri hjá Yara.
Kostnaður við öflun gæða gróffóðurs.
• Unnsteinn Snorri Snorrason, bútæknifræðingur.
Fóðrun og frjósemi sauðfjár.
Sláturfélag Suðurlands svf · Fosshálsi 1 · 110 Reykjavík · 575 6000 · www.ss.is


back to top