Auðhumla hækkar verð á mjólk umfram greiðslumark

Stjórn Auðhumlu svf. hefur ákveðið að hækka verð á mjólk umfram greiðslumark frá 1. september 2011. Fyrir fyrstu 2% umfram greiðslumark verða greiddar 50 kr/ltr og 40 kr/ltr fyrir allt umfram þau 2%. Hækkunin nemur 5 kr/ltr fyrir fyrstu 2% umfram greiðslumark og 3 kr/ltr fyrir allt umfram það. Ástæða hækkunarinnar er hátt heimsmarkaðsverð á mjólk og mjólkurvörum.
Innanlandsframleiðsla á mjólk síðustu 12 mánuði (júlí 2010-júní 2011) nemur 122,2 milljónum lítra. Sala á próteingrunni var 114,8 milljónir lítra en 111 milljónir lítra á fitugrunni. Því þarf að flytja út prótein úr 7,8 milljónum lítra og fitu úr 11,2 milljónum lítra. Mest af próteininu er flutt út í formi undanrennudufts en einnig í nokkrum mæli sem skyr. Salan á skyrinu er stöðug í Bandaríkjunum og fer mjög vel af stað í Finnlandi.
Skilaverð á skyri hefur verið gott og heimsmarkaðsverð á undanrennudufti fór hækkandi framan af ári, en hefur heldur verið að gefa eftir að undanförnu. Í sögulegu samhengi er núverandi heimsmarkaðsverð mjög hátt. Fitan er nær öll flutt út í formi smjörs. Heimsmarkaðsverð á því hefur haldist hátt nær allt þetta ár og er í sögulegu samhengi eitt það hæsta sem sést hefur.


back to top