Afurðir á uppleið

Uppgjör skýrsluhalds nautgriparæktarinnar fyrir ágúst hefur verið birt á vef BÍ. Afurðir hér á Suðurlandi standa nú í 5.483 kg/árskú sem er 43 kg meira en um áramótin síðustu. Af sýslunum fjórum eru afurðir nú mestar í Árnessýslu eða 5.563 kg /árskú. Á landsvísu standa afurðir eftir árskú nú í 5.334 kg.
Tröð í Borgarbyggð (fyrrum Kolbeinsstaðahreppi) er sem stendur afurðahæsta búið með 7.848 kg/árskú. Af sunnlenskum búum er Reykjahlíð efst og í þriðja sæti á landsvísu með 7.661 kg/árskú. Þar skammt á eftir kemur Gunnbjarnarholt með 7.508 kg/árskú og er í fjórða sæti á landsvísu. Gunnbjarnarholt er langstærsta búið á landinu sem er með afurðir yfir 7.000 kg/árskú að loknu ágúst-uppgjöri með 109,6 árskýr. Þau bú hafa aldrei verið fleiri en nú eru 18 bú sem ná þessu marki og hefur fjölgað um eitt frá því í júlí.
Örk 166 Almarsdóttir 90019 í Egg í Hegranesi stendur enn á toppnum yfir afurðahæstu kýr með ótrúlegar afurðir þó hún hafi lækkað nokkuð frá því í júlí. Síðustu tólf mánuði hefur hún mjólkað 14.339 kg mjólkur. Af sunnlenskum kúm er Þura 435 Draumsdóttir 03015 í Gunnbjarnarholti efst með 12.636 kg og hefur bætt í frá því í júlí. Hún er í öðru sæti á landsvísu.

Niðurstöður skýrsluhaldsins á vef BÍ


back to top