Flúor í öllum gróðursýnum undir þolmörkum búfjár
Búið er að efnagreina gróðursýni sem tekin voru dagana 9. – 11. júlí sl. Niðurstöðurnar sýna að flúormagn í sýnunum er í öllum tilvikum vel undir hættumörkum fyrir sauðfé og undir eða við hættumörk fyrir nautgripi og hross.
Niðurstöðurnar voru eftirfarandi:
| Staður | Dags. | mg F/kg |
| Raufarfell, tún | 10. júlí | 13 |
| Skarðshlíð, há | 11. júlí | 9 |
| Seljavellir, tún | 10. júlí | 19 |
| Raufarfell, úthagi | 10. júlí | 29 |
| Þorvaldseyri, há | 11. júlí | 15 |
| Skógar, Austurtún | 9. júlí | 28 |
| Skógar, Efri-Sandur | 9. júlí | 30 |
| Hlíð, tún | 10. júlí | 19 |
| Efsta-Grund, há | 11. júlí | 24 |
| Skógaheiði 1, framarlega | 9. júlí | 20 |
| Skógaheiði 2, miðja | 9. júlí | 21 |
| Skógaheiði 3, innarlega | 9. júlí | 26 |
Flúor í öllum gróðursýnum undir þolmörkum búfjár
Búið er að efnagreina gróðursýni sem tekin voru þann 1. júní s.l. Niðurstöðurnar sýna að engin ástæða er til að óttast flúoreitrun í búfénaði á beit þar sem öll sýni eru neðan þolmarka sauðfjár, nautgripa og hrossa.
Niðurstöðurnar eru eftirfarandi:
(meira…)

Follow




