Námskeið í ullarflokkun haustið 2010

Stórátak er að fara af stað í flokkun á ull í næsta mánuði þar sem Ullarmatsnefnd og Landssamtök sauðfjárbænda í samvinnu við Endurmenntun Landbúnaðarháskóla Íslands standa fyrir námskeiðum í ullarflokkun víðsvegar um land.
Námskeiðin verða haldin í fjárhúsum hjá bændum þar sem rúið verður og ullin flokkuð jafnóðum. Auk þess verður farið yfir reglur um ullarflokkun og sýndar myndir til skýringar.
Fyrirhugað er að halda námskeiðin á 17 stöðum og á sumum þeirra er möguleiki á tveimur námskeiðum sama daginn ef þátttaka verður mikil.  Hvert námskeið verður u.þ.b. hálfur dagur ýmist fyrir eða eftir hádegi.  Reiknað er með að hámarksfjöldi á hverju námskeiði séu 15 manns.   Leiðbeinendur verða Emma Eyþórsdóttir, formaður ullarmatsnefndar og Guðjón Kristinsson, framkvæmdastjóri Ístex h.f.
Markmiðið með þessu átaki er að bæta vinnubrögð við ullarflokkun og stuðla þannig að betri nýtingu og auknu verðmæti ullarinnar.

Námskeiðsgjald er ekkert en gerð er krafa um skráningu sem fer fram hjá Endurmenntun LbhÍ í síma 433 5000 eða um netfangið endurmenntun@lbhi.is

Skráningarfrestur er til fimmtudagsins  28. október nk.


Borgarfjöður – Steinar II. Laug. 30. okt. kl. 09.00
Vestur-Húnavatnssýsla – Urriðaá  sun. 31. okt. kl. 09.00
Austur-Húnavatnssýsla – Sölvabakki. Sun. 31. okt. Kl. 16.00
Skagafjörður – Syðri Hofdalir. Mán. 1. nóv. kl. 09.00
Suður-Þingeyjarsýsla – Ingjaldsstaðir. Þri. 2. nóv. kl. 09.00
Norður-Þingeyjarsýsla – Laxárdalur í Þistilfirði. Mið. 3. nóv. (nánar síðar)
Borgafjörður eystri – (nánar síðar), fim. 4. nóv. kl 09.00
Miðhérað – (nánar síðar), fim. 4. nov. kl. 16.00
Austur-Skaftafellssýsla – Nýpugarðar. Fös. 5. nóv. kl. 09.00 og Svínafell kl. 16.00
Vestur-Skaftafellssýsla – Kirkjubæjarklaustur II lau. 6. nóv. kl. 09.00 og Giljur í Mýrdal kl. 16.00
Rangárvallasýsla – Teigur í Fljótshlíð. Sun. 7. nóv.  kl. 09.00
Árnessýsla – Egilsstaðakot í Flóa. Sun. 7. nóv. kl. 16.00
Dalasýsla – Magnússkógar III. Þri. 9. nóv. kl. 09.00
Reykhólasveit – Fremri-Gufudalur. Þir. 9. nóv. kl. 16.00
Vestfirðir – Minni Hlíð, Bolungavík. Mið. 10. nóv. kl. 13.00


back to top